Faðir sem handtekinn var í tengslum við rannsókn á manndrápi í Breiðholti aðfaranótt sunnudags er laus úr haldi.
Þetta staðfestir Guðmundur St. Ragnarsson verjandi mannsins í samtali við fréttastofu.
Sonur mannsins er talinn hafa beitt hnífi í átökum við tvo menn. Ekki liggur fyrir hver aðkoma föðurins var.
Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald á sunnudaginn sem átti að gilda til 9. nóvember.
„Hann var í gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna,“ segir Guðmundur. „Lögregla telur að búið sé að tryggja rannsóknarhagsmuni og þykir því ekki ástæða til að hafa hann í gæsluvarðhaldi lengur.“
Guðmundur segir þátt mannsins í málinu ekki með þeim hætti að lögregla teldi þörf á að hafa hann í haldi.
Verjandinn vildi ekki tjá sig um hvort maðurinn væri grunaður um brot en sagði hann með alvarlega áverka á höfði og á hendi.
