Segir fölsuð gögn hluta af greinargerð Írisar Helgu

Fjölskyldumeðlimur brotaþola í málinu gegn Írisi Helgu Jónatansdóttur sagði fölsuð gögn hafa verið í greinargerð sem hún lagði fyrir dóm. Aðalmeðferð í málinu hélt áfram í héraðsdómi Reykjaness í morgun en þinghald var að hluta til lokað.

Íris Helga er ákærð er fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, skjalafals, rangar sakargiftir og ærumeiðandi aðdróttanir á árunum 2022 til 2025.

Hún er sögð hafa stundað umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu hennar. Hún er einnig sökuð um barnaverndarlagabrot þar sem brot hennar eru einnig sögð hafa beinst að börnum tveggja mannanna.

Heimildin greindi frá því í morgun að tveir brotaþolar í málinu hafi fengið nálgunarbann á hendur henni sem gildir í 12 mánuði. Nálgunarbannið kom eftir atvik þar sem hún sat fyrir brotaþola og sambýliskonu hans á miðvikudag eftir að þriðja degi aðalmferðar í máli hennar lauk.

Nálgunarbannið var lagt fyrir dómara strax í morgun.

Strax ljóst hvað væri að eiga sér stað þegar falskar tilkynningar bárust

Fjölskyldumeðlimir brotaþolanna og starfsfólk barnaverndar báru vitni í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Skýrslutökur gengu hratt fyrir sig og hvert vitnið á fætur öðru kom inn í dómsalinn í morgun.

Þinghaldi var lokað þegar geðlæknir sem gerði geðmat á Írisi Helgu kom í skýrslutöku sem og þegar sálfræðingur hennar gaf skýrslu ásamt sálfræðingum fjölskyldumeðlima brotaþola.

Dómari tók þessa ákvörðun, að sögn saksóknara ákæruvaldsins. Aðspurður hvort þetta væri gert oft sagði hann að þetta þekktist.

Sonur eins brotaþolans kom fyrstur fyrir dóm í morgun, fjalla var um skýrslutöku hans í fréttinni hér að neðan.

Í máli annars starfsmanns barnaverndar kom fram að þegar falskar og rangar tilkynningar til barnaverndar hafi borist vegna Garps Elísabetarsonar og dóttur hans hafi strax komið í ljós hvað væri að eiga sér stað.

Garpur er einn þriggja brotaþola í málinu. Hann steig fram í viðtali við Vísi í mars 2025 þar sem hann lýsti reynslu sinni af umsáturseinelti Írisar Helgu.

Starfsmaðurinn sagði barnavernd hafa borist tilkynningu undir nafni Sölva Guðmundssonar, annars brotaþola í málinu, og stuttu síðar undir nafni tengdamóður hans. Síðasta tilkynning hafi borist nokkrum dögum eftir það. Nafnleynd af þeirri tilkynningu var aflétt og þá kom í ljós að tilkynnandi var Íris Helga.

Ákæruvaldið spurði hvort hún hefði mótmælt að nafnleynd yrði aflétt. Starfsmaðurinn svaraði játandi og að Íris Helga hafi sagst ætla að láta lögmann sinn hafa samband. „En svo kom ekkert meira.“

Eins og kom fram hér að ofan er Íris Helga meðal annars sökuð um brot á barnaverndarlögum.

Skora á ákæruvaldið að leggja fram öll samskipti

Áður en starfsmaður barnaverndar kom í skýrslutöku lagði verjandi mannsins sem ákærður er með Íris Helgu bókun fyrir dómi þar sem skoraði á ákæruvaldið að leggja fram öll rafræn samskipti Írisar og mannsins á ákveðnu tímabili 2023.

Maðurinn sem er ákærður með Írisi Helgu er gefið að sök að hafa aðstoðað hana í umsáturseineltinu. Hann er sakaður um að hafa farið að heimili fyrrum sambýlismanns Írisar Helgu og makað skít á heimili hans og sambýliskonu.

Maðurinn hafnaði því fyrr í vikunni, þegar skýrsla var tekin af honum, að hafa hvatt hana til verka. Hann viðurkenndi þó að hafa farið að heimilum brotaþola og atað hús þeirra með saur.

„Þau upplifa sig frelsissvipt“

Áður en þinghaldi var endanlega lokað í dag gáfu fjölskyldumeðlimir tveggja brotaþola skýrslu. Annars vegar móðursystir sambýliskonu eins og mágkona Garps.

Mórðusystirinn sagðist hafa átt í samskipti við Írisi þar sem hún hafi beðið hana um að hætta að hrella fjölskylduna. Hún sagðist hafa sent Írisi skilaboð og eftir það hafi hún fengið skilaboð til baka frá ýmsum aðgöngum.

Henni sagðist hafa liði mjög illa að fá slík skilaboð.

Hún sagðist vita til þess að Íris Helga hafi búið til aðgang þar sem hún notaði hennar nafn og sett inn á síðu Gleymérey. Þar hafi Íris Helga sakað hana um að hafa drepið barnið sitt.

„Þetta gerði ég ekki, þetta er ekki rétt. Mér leið ekki vel með það.“

Konan sagði ekki til lýsingarorð til að lýsa því hvernig brotaþolanum og sambýliskonu hans líður.

„Þau upplifa sig frelsissvipt.“

Málið hafi fengið mikið á fjölskylduna.

Ákæruvaldið bar síðan undir hana fylgiskjal úr greinargerð sem Íris Helga lagði fram. Í henni eru meðal annars skjáskot og samskipti vitna við Írisi.

Ákæruvaldið sýndi konunni skilaboð í hennar nafni sem hún kannaðist ekki við. „Nei, ég kannast ekki við þetta.“

Fölsuð gögn í greinargerð

Síðust til að gefa skýrslu áður en þinghaldi var lokað var mágnkona Garps. Það var á ellefta tímanum og dómsalur orðinn troðfullur, blaðamaður mbl.is þurfi að sitja á gólfinu því ekki voru nógu margir stólar fyrir alla gesti.

Aðallega voru þó fjölmiðlar og aðstandendur þeirra sem tengjast málinu mættir. Fyrr í vikunni voru áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórnendur áberandi í dómsal en það var ekki í morgun.

Mágkonan sagðist hafa látið vita að fösluð gögn væru í fylgiskjali greinargerðar sem Íris Helga hafi lagt fyrir dóminn. Það var færsla sem konan skrifaði á Facebook. Hún segir að búið hafi verið að eiga við ummæli við hana.

Konan sagðist hafa skrifað ummæli við færsluna þar sem hún hafi látið vita að hægt væri að deila færslunni áfram. Ummælin sem eru fylgdu í fylgigögnum greinargerðarinnar voru þess eðlis að hún hefði beðið dóttur Írisar að taka eigið líf. Þar stóð meðal annars „Ertu til í að svipta þig lífi?“

Konan sagði að sér liði mjög illa með það. Hún sagði gögnin fölsuð, greinilegt væri að letrinu hefði verið breytt og hún hefði aldrei skrifað þetta.

Aðalmeðferð heldur áfram á þriðjudag í héraðsdómi Reykjaness þegar munnlegur málflutningur fer fram.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.