Karlmaður situr í gæsluvarðhaldi grunaður um fjölda brota, þar á meðal sex líkamsárásir, á þessu ári. Hann var handtekinn grunaður um að hafa, í samfloti við þrjá aðra, rænt dreng í Reykjavík í síðustu viku.
Þeir eru taldir hafa ógnað honum með bæði byssu og hnífi, slegið hann, tekið af honum farsímann og látið hann millifæra á þá fé.
Auk þessa máls er maðurinn með 14 opin mál í kerfum lögreglu, öll frá því á þessu ári. Þeirra á meðal eru sex líkamsárásir, þar af fimm stórfelldar, og þrjú rán.
Hann er auk þeirra brota grunaður um vopnalagabrot, valdstjórnarbrot, fíkniefnalagabrot, frelsissviptingu, fjárkúgun, þjófnað, hótanir, tilraun til húsbrots og eignaspjöll.
Þá er hann grunaður um að hafa haft stera í vörslu sinni.
Málin sem eru til meðferðar hjá lögreglu
- janúar. Stórfelld líkamsárás. Maðurinn grunaður um að hafa beitt hnífi.
-
janúar. Vopnalagabrot. Taska með tveimur skotvopnum fannst á heimili hans.
-
janúar. Valdstjórnarbrot: Maðurinn grunaður um að hrækja á lögreglumenn.
-
janúar. Fíkniefnalagabrot: Maðurinn grunaður um innflutning á kannabis.
-
ágúst. Stórfelld líkamsárás: Maðurinn grunaður um að hafa slegið öryggisvörð með flösku.
-
ágúst. Frelsissvipting, fjárkúgun og stórfelld líkamsárás: Maðurinn grunaður um frelsissviptingu, fjárkúgun og stórfellda líkamsárás þar sem hnífi var beitt.
-
ágúst. Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot: Maðurinn grunaður um stórfellda líkamsárás þar sem hnífi var beitt, auk vopnalagabrots.
-
október. Þjófnaður: Maðurinn grunaður um þjófnað og innbrot í fyrirtæki.
-
október. Rán: Maðurinn grunaður um rán þar sem hnífi var beitt til að fá brotaþola til að leggja inn á þriðja aðila fjármuni.
-
október. Rán og stórfelld líkamsárás. Maðurinn grunaður um rán og stórfellda líkamsárás þar sem hnífi var beitt gegn öryggisverði í verslun. Sá hlaut stungusár.
-
október. Valdstjórnarbrot: Maðurinn grunaður um að hafa sparkað í andlit lögreglumanns.
-
október. Brot á lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum: Grunaður um að hafa stera í vörslu sinni.
-
október. Eignaspjöll og tilraun til húsbrots. Maðurinn grunaður um eignaspjöll og tilraun til húsbrots með því að hafa brotið rúðu í verslun.
-
október. Líkamsárás: Maðurinn grunaður um líkamsárás.
-
nóvember. Rán og hótanir. Maðurinn grunaður um rán og hótanir gegn dreng.
Ungur og viðkvæmur maður, segir verjandi
„Miðað við framangreinda brotahrinu varnaraðila er það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að hann muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna á meðan málum hans sem eru til meðferðar hjá lögreglu er ekki lokið,“ segir í rökstuðningi lögreglustjóra í gæsluvarðhaldsúrskurði.
Verjandi mannsins vildi að litið væri til þess að hann væri bæði ungur og viðkvæmur. Dómari taldi hins vegar að maðurinn héldi áfram að brjóta af sér færi hann frjáls ferða sinna.
„Að mati dómsins verður ekki séð að sú brotahrina sem nú hefur staðið yfir nær sleitulaust frá því í ágúst sl. verði ekki að svo stöddu stöðvuð með öðrum hætti en því að fallast á kröfu sóknaraðila,“ segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur.
Maðurinn sætir gæsluvarðhaldi til 2. desember.
