Kalla eftir niðurstöðum erfðarannsókna Íslenskrar erfðagreiningar

Heilbrigðisráðuneytið hefur kallað eftir niðurstöðum erfðarannsókna Íslenskrar erfðagreiningar allt frá árinu 1996.

Kári Stefánsson, stofnandi og fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins, greindi frá þessu í Morgunútvarpinu í gær og sagði tilganginn að byggja upp einstaklingsbundna heilbrigðisþjónustu í landinu.

Það er staðfest í skriflegu svari frá ráðuneytinu þar sem segir að stefnumótunarnefnd um einstaklingsmiðaða heilbrigðisþjónustu hafi skilað Ölmu Möller heilbrigðisráðherra skýrsludrögum í júní 2025.

Hvað er einstaklingsbundin heilbrigðisþjónusta?

Í stuttu máli má skýra hana þannig að forvarnir, greining og meðferðir eru sérsniðnar að þörfum og líffræðilegum eiginleikum hvers og eins. Það er gert í stað þess að beita sömu lausninni á alla sem fá ákveðinn sjúkdóm.

Þau séu grundvöllur þingsályktunartillögu ráðherra um málið sem hún mælti fyrir í liðinni viku.

Íslensk erfðagreining hafi lýst yfir fullum vilja til að koma að mótun og framkvæmd þjónustunnar samkvæmt þeim markmiðum sem fram koma í tillögunni. Áður en gögnin fást afhent þarf að breyta lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, sem er á þingmálalista heilbrigðisráðherra.

Niðurstöður rannsókna ÍE hafa varpað ljósi á uppruna sjúkdóma og orsök

Niðurstöður erfðafræðirannsókna Íslenskrar erfðagreiningar hafa fyrst og fremst nýst við að auka skilning á orsökum sjúkdóma, lyfjaþróun og forvarnir fyrir fólk sem kann að vera berskjaldað fyrir alvarlegum heilsubresti.

Á vef Íslenskrar erfðagreiningar segir að fólki sem greinist með áhættuarfgerðir hafi verið boðin sérhæfð ráðgjöf hjá Landspítalanum.

Íslendingar gátu einnig nálgast upplýsingar á vefnum arfgerd.is um hvort þeir beri BRCA2-krabbameinsgenið sem eykur mikið líkur á brjóstakrabbameini, eggjastokkakrabbameini og krabbameini í blöðruhálskirtli.

Rannsóknir ÍE hafa einnig skýrt erfðafræðilegan uppruna fjölda sjúkdóma á borð við sykursýki, hjarta- og æðasjúkdóma og geðsjúkdóma ásamt því að varpa ljósi á erfðafræðilegan uppruna landsmanna.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.