RÚV verður heimilt að leggja niður aðra af útvarpsrásum sínum, verði frumvarp stjórnvalda um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið samþykkt. Fallið hefur verið frá áformum um tveggja komma átta milljarða króna þak á auglýsingatekjur.
Kjarnabreytingarnar tvíþættar
Frumvarp um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið var samþykkt á fundi ríkisstjórnar í síðustu viku. Það miðar að því að draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði og er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla.
Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra, segir kjarnabreytingarnar tvíþættar.
„Í fyrsta lagi er dregið úr fjárframlagi ríkisins til útvarpsins sem nemur 10 prósentum af auglýsingatekjum útvarpsins, sem rennur þá til sjálfstæðu miðlanna. Og í öðru lagi eru felldar á brott kvaðir um lágmarks- eða hámarksfjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva sem ríkisútvarpinu er skylt að dreifa um allt land.“
Þak á auglýsingatekjur gæti ýtt undir undirboð
Upphaflega stóð til að setja 2,8 milljarða króna þak á auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins. Í nýsamþykktum breytingum er hinsvegar fallið frá þeirri kröfu.
„Frumvarpið fór í lögbundið samráð og við fengum nokkrar athugasemdir við það og ábendingar. Og meðal þess sem við fengum var ábending, vel rökstudd, um að það gæti leitt til þess að hægt væri að bregðast við með undirverðlagningu á auglýsingu, sem væri auðvitað vont gagnvart samkeppnisaðilum,“ segir Logi.
„Og við teljum okkur einfaldlega geta náð sama markmiði með því að hnykkja á og skerpa á nýjum þjónustusamningi sem við ætlum að gera við Ríkisútvarpið á fyrri hluta næsta árs.“
Ráðherra mælir fyrir frumvarpinu á Alþingi í dag.
„Ég held að allt sem lýtur að Ríkisútvarpinu sé umdeilt inn á þingi. Og þær raddir hafa heyrst sem vilja halda öllu óbreyttu og yfir í það að vilja taka RÚV af auglýsingamarkaði,“ segir Logi.
„Við munum auðvitað færa rök fyrir þeirri leið sem við erum að fara, sem við teljum að sé svona byggð á meðalhófi og skynsamleg og til þess fallin að vernda RÚV sem lykilaðila á íslenskum fjölmiðlamarkaði um leið og við fáum peningalegt svigrúm til að styðja við einkareknu fjölmiðlana, sem skipta líka gríðarlega miklu máli.“
