Grunaður um gróft heimilisofbeldi og ítrekaðar nauðganir

Karlmaður er í haldi lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna rannsóknar á grófu heimilisofbeldi sem hann er grunaður um að hafa beitt konu sína. Hann hefur verið í haldi frá því 12. september á grundvelli almannahagsmuna. Landsréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms í gær og maðurinn verður í haldi til 4. desember.

Rannsókn málsins hófst 29. ágúst eftir að lögregla var kölluð til vegna tilraunar mannsins til að svipta sig lífi. Þá fór sambýliskona hans að tjá sig um áralangt ofbeldi sem hún sagðist hafa mátt þola. Hún lýsti því að hafa verið ítrekað tekin hálstaki, stungin með hníf í bakið og ítrekað neydd til kynlífs með ofbeldi.

Játaði en dró það til baka

Í síma mannsins fundust myndir þar sem hann er að stunda kynlíf með konunni þar sem hún virðist sofandi. Hann hefur játað að hafa neytt hana ítrekað til kynlífs með ofbeldi og að hafa sofið hjá henni þegar hún svaf.

Þegar gögnin voru borin undir hana vissi sambýliskonan ekki af myndunum.

Maðurinn játaði einnig líkamsárásir, kyrkingar, hnífsstungu og að hafa beitt konuna og börn þeirra mikilli kúgun og stjórnun. Í síðustu skýrslu sinni dró hann þó játningar sínar til baka og sagðist aldrei hafa beitt konuna ofbeldi.

Rannsókn er á lokastigum og í úrskurði Héraðsdóms Norðurlands eystra segir að málið verði sent til héraðssaksóknara á næstunni.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.