Gististaðurinn Arctic Wind í Vogum þarf ekki að greiða þýskri konu 157 þúsund krónur vegna þess að hún gat ekki gist hjá þeim eftir að heitavatnslögn fór í sundur í febrúar 2024. Konan þarf hins vegar að greiða gististaðnum 834 þúsund krónur í málskostnað.
Þýska konan átti bókaða gistingu í tveimur herbergjum 8.–13. febrúar 2024. Gistingin mun hafa kostað 1.092 evrur, um 150 þúsund krónur að núvirði.
Vogar heitavatnslausir eftir að eldgos hófst
Að morgni 8. febrúar hófst eldgos á Reykjanesskaga með þeim afleiðingum að hraunstraumur fór yfir Njarðvíkuræð sem sér íbúum á Suðurnesjum fyrir heitu vatni.
Rekendur gististaðarins höfðu samband við konuna og létu hana vita af því að Vogar væru heitavatnslausir. Var henni ráðlagt að afbóka gistinguna.
Konan mun hafa komið á gististaðinn sama dag og verið meinaður aðgangur vegna heitavatnsleysis.
Að mati Héraðsdóms Reykjaness var hitavatnsleysið óviðráðanlegt atvik (force majeure). Í meginreglu eiga slík atvik, til dæmis ófyrirséðar náttúruhamfarir, að leiða til lausnar undan ábyrgð vegna vanefnda.
Þá var gistingin ekki keypt beint af Arctic Wind heldur pöntuð í gegnum þriðja aðila, Expedia. „Stefnandi getur ekki borið fyrir sig gagnvart stefnda að samningsskilmálar Expedia séu ósanngjarnir,“ segir í dómnum.
Arctic Wind var því sýknað af kröfum konunnar.
