Lögmenn þeirra sem urðu fyrir ofbeldi í vistun á vegum hins opinbera telja að fjórfalda ætti þær bætur sem lagðar eru fram í frumvarpi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um sanngirnibætur. Nauðsynlegt sé að gera umfangsmiklar breytingar á því til að endurspegla alvarleika þeirra brota sem sanngirnisbótum er ætlað að bæta.
Lögmennirnir Bjarki Heiðar Bjarnason og Snorri Steinn Vidal hjá Soldium lögmannastofu fagna því í umsögn sinni að lagafrumvarp forsætisráðherra sé komið í samráðsgátt en telja að gera þurfi miklar breytingar á því. Þeir annast hagsmunagæslu fyrir hönd tuga manna sem vistaðir voru sem börn víðs vegar um landið af hinu opinbera og urðu fyrir alvarlegu ofbeldi.
Frumvarpinu er ætlað að koma á varanlegu úrræði fyrir þá sem urðu sem börn fyrir illri meðferð eða ofbeldi í vistun utan heimilis fyrir atbeina stjórnvalda. Móttaka á umsóknum um bætur hefst 1. janúar 2028 verði frumvarpið að lögum.
Í núverandi útgáfu frumvarpsins er lagt upp með að bætur verði á bilinu ein, þrjár eða fimm milljónir króna eftir alvarleika hvers máls. Þá eigi sálrænn stuðningur að vera háður faglegu mati á þörfum viðkomandi.
Lögmennirnir telja að bótaflokkar ættu frekar að vera þrír, sex og tólf milljónir króna og að heimilt verði að greiða allt að 21,2 milljónir í sérstaklega alvarlegum tilvikum.
Telja hina norsku fyrirmynd rangtúlkaða
Bjarki og Snorri telja að þrátt fyrir að fjárgreiðslur geti ekki bætt að fullu það tjón sem brotaþolar hafa orðið fyrir þurfi bæturnar að vera það háar að þeir geti bætt hag sinn til lengri tíma.
Þeir benda á að í greinargerð frumvarpsins séu núverandi fjárhæðir rökstuddar með vísan til norskrar fyrirmyndar. Bjarki og Snorri telja þó að ekki sé verið að túlka hina norsku fyrirmynd með réttum hætti.
Í Noregi hafi verið greiddar margfalt hærri bætur en frumvarpið miði við sem hafi ýmist komið frá sveitarfélögum eða frá þeim og norska ríkinu. Í umsögn segir að samanlagðar greiðslur í Noregi hafi í sumum tilvikum numið tugum milljóna íslenskra króna á verðlagi dagsins í dag.
Annað sem Bjarki og Snorri benda á er að upphaflegt hámark sanngirnisbóta hafi áður verið sex milljónir króna. Sé sú upphæð framreiknuð með tilliti til meðalvísitölu neysluverðs á fyrri hluta árs 2010, þegar lögin tóku gildi, fram í október 2026 jafngildi sú fjárhæð um 11,6 milljónum króna. Því sé fimm milljóna króna hámarkið sem lagt er til í frumvarpinu raunverulega helmingslækkun á bótum.
Ekki greitt fyrir lögmannsaðstoð
Ekki er gert ráð fyrir að ríkið greiði sérstaklega fyrir lögmannsaðstoð fyrir brotaþola en þeim verður veittur tengiliður á vegum sýslumanns sem leiðbeina á þeim við gerð umsóknar og gagnaöflun.
Þetta telja Bjarki og Snorri að sé fyrirkomulag sem henti ekki þar sem mögulegt er að lögmaður gæti þurft að afla gagna frá fleiri en einu sveitarfélagi, kanna grundvöll vistunar, leggja mat á fyrningu og þýðingu fyrri bóta og aðstoða við skýrslutökur ásamt fleiru sem jafnan ætti að vera í verkahring lögmanns.
„Að ætla brotaþolum að treysta hinu opinbera með þeim hætti sem frumvarpið gerir ráð fyrir ber að mati undirritaðra vott um vanþekkingu á þeim veruleika sem brotaþolar búa við,“ segir í umsögn Bjarka og Snorra.
Mótmæla stjórnarsetu fulltrúa SÍS
Gert er ráð fyrir að Samband íslenskra sveitarfélaga fái að tilnefna tvo stjórnarmenn í stjórn sjóðsins sem kæmi til með að taka ákvörðun um greiðslu bóta. Ráðherra myndi skipa alls fimm þeirra og þrír yrðu skipaðir án tilnefningar.
Þetta telja Bjarki og Snorri annmarka þar sem sveitarfélögin hafi hagsmuna að gæta þegar teknar eru ákvarðanir um bætur þar sem þeim er ætlað að fjármagna greiðslur að hluta.
