„Einhver talar hærra við þig vegna þess að þú talar ekki nógu góða íslensku. Annar hunsar þig. Þetta virðast kannski smávægileg atvik, en þegar þau endurtaka sig stöðugt geta þau haft mikil áhrif á sjálfsmynd þína og líðan.“
Þannig lýsir Joanna Marcinkowska, sérfræðingur í fjölmenningu og inngildingu, dæmum um öráreitni sem erlendir háskólanemar geta orðið fyrir. Hún segir að niðurstöður nýrrar rannsóknar sýni jafnframt tengsl milli þess að upplifa fordóma og verri andlegrar líðanar.
Joanna hefur undanfarin tvö ár stýrt verkefninu „Inngilding í íslensku háskólasamfélagi“. Í pólskumælandi hlaðvarpi RÚV, Wyspa, ræðir hún reynslu nemenda, niðurstöður rannsóknarinnar og hvernig íslenskir háskólar geti betur mætt þörfum fjölbreytts nemendahóps.
Að sitja úti í horni og þora ekki að tala
Ein frásögn úr verkefninu hefur setið sérstaklega í Joönnu. Hún kynntist Zuzönnu, ungri konu af pólskum uppruna, sem kom til Íslands sem barn og lauk síðar meistaranámi í heimspeki.
Við gerð kynningarmyndbands fyrir verkefnið voru nemendur spurðir hvað það þýddi fyrir þá að tilheyra háskólasamfélaginu.Hún sagði eitthvað sem sat mjög sterkt í mér. Hún velti því fyrir sér hvort það væri einfaldlega hluti af því að vera útlendingur að þegja, sitja úti í horni og þora ekki að taka til máls.
Joanna segir þessa frásögn sýna að inngilding snúist ekki aðeins um aðgang að menntun. Það skipti ekki síður máli að nemendur upplifi sig sem hluta af samfélaginu, geti tekið þátt í umræðum, unnið með öðrum og komið sjónarmiðum sínum á framfæri.
Hún þekkir sjálf þá tilfinningu að standa stundum utan við hópinn þrátt fyrir að hafa búið á Íslandi í meira en tvo áratugi.Ég hef búið hér í meira en 20 ár og unnið nánast alltaf með Íslendingum. Samt koma enn augnablik þegar mér finnst ég vera utangarðs. Það þarf ekki að vera vegna þess að einhver hafi sagt eða gert eitthvað ákveðið. Þetta er tilfinning sem getur verið mjög erfitt að útskýra.
Háskólar í fjölbreyttara samfélagi
Verkefnið sem Joanna stýrði var unnið í samstarfi fjögurra opinberra háskóla: Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólans á Hólum. Það var fjármagnað af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu.
Í upphafi var lögð könnun fyrir erlenda nemendur og haldnir rýnihópafundir með nemendum, kennurum og starfsfólki háskólanna.
„Ég vildi ekki að verkefnið byggðist á því sem ég sjálf teldi að þyrfti að gera. Það var mjög mikilvægt fyrir okkur að fólkið sem nýtir þjónustu háskólanna fengi sjálft tækifæri til að tjá sig.“
Joanna bendir á að íslenskt samfélag hafi breyst mikið og háskólarnir þurfi að þróast í takt við það.
Samkvæmt tölum sem fram koma í þættinum stunda 2.525 nemendur með erlent ríkisfang nám við Háskóla Íslands. Þeir koma frá 112 löndum.
Í þessum hópi eru bæði skiptinemar, fólk sem kemur tímabundið til Íslands til náms og innflytjendur sem hafa búið hér lengi. Þeir sem hafa fengið íslenskan ríkisborgararétt eru hins vegar ekki taldir með.
Hvað merkir það eiginlega að vera alþjóðlegur háskóli? Er það fyrst og fremst að erlendir nemendur geti komið þangað til náms?
Joanna segir alþjóðavæðingu ekki síður snúast um tækifæri þeirra innflytjenda sem þegar búa á Íslandi. Hlutfallslega færri innflytjendur sækja sér háskólamenntun en Íslendingar og tungumálið er ein helsta skýringin.
Hún nefnir að margir Pólverjar búsettir hér velji að stunda nám í Póllandi þar sem þeim finnist auðveldara að læra á móðurmáli sínu. Aðrir fari beint út á vinnumarkaðinn.
„Við viljum að fólk ljúki háskólanámi og hafi sömu tækifæri á vinnumarkaði. Ef fleiri einstaklingar af erlendum uppruna starfa í stjórnsýslunni og gegna ábyrgðarstöðum verða fleiri sjónarmið tekin með þegar ákvarðanir eru teknar.“
Tungumálakunnátta og sveigjanleiki í námi
Tungumálakunnátta var eitt helsta viðfangsefnið í rannsóknunum. Joanna segir að þeir sem ekki hafi lokið íslensku stúdentsprófi þurfi víða að sýna fram á íslenskukunnáttu á B2-stigi til að hefja háskólanám. Slík kunnátta þýði þó ekki endilega að nemendur hafi náð fullum tökum á fræðilegu máli.
„B2-stig er ekki akademískt málstig. Auðvitað væri best ef allir kynnu íslensku fullkomlega en það er ekki raunveruleikinn sem við búum við.“
Nemendur lýstu meðal annars óvissu um hvaða tungumál mætti nota í námi. Í sumum námskeiðum væri hægt að skila verkefnum á ensku en á öðrum ekki. Reglurnar væru ekki alltaf skýrar fyrir fram.
Joanna segir mikilvægt að kennarar geri grein fyrir tungumálakröfum í upphafi námskeiða og kynni jafnframt þann stuðning sem nemendum stendur til boða.
„Þegar þú skráir þig í háskóla veistu í raun ekki alltaf út í hvað þú ert að fara. Kennarar hafa mikið sjálfstæði og ákveða sjálfir hvernig námskeiðin eru skipulögð. Þess vegna skiptir máli að reglurnar séu skýrar frá upphafi.“
Hún leggur áherslu á mikilvægi íslenskunnar en telur jafnframt að ákveðinn sveigjanleiki í kennslu geti gagnast fjölbreyttum nemendahópi. Til dæmis sé algengt að námsefni sé á ensku þótt ætlast sé til að verkefnum sé skilað á íslensku.
Fordómar og áhrif þeirra á líðan
Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að fordómar og öráreitni séu raunverulegur hluti af reynslu margra erlendra háskólanema.
Joanna segir tungumálið oft tengjast slíkum atvikum. Fólk geti til dæmis orðið fyrir því að vera hunsað eða upplifað að aðrir sýni því minni þolinmæði vegna íslenskukunnáttu þess.
Áhrifin geti verið meiri en ætla mætti, sérstaklega þegar slík reynsla endurtekur sig.
„Við sáum að andleg líðan þeirra nemenda sem höfðu orðið fyrir fordómum var mun verri en þeirra sem höfðu ekki upplifað slíkar aðstæður.“
Hún telur mikilvægt að ræða fordóma opinskátt en einnig að leita leiða til að vinna gegn þeim með fræðslu og samtali.
En ætti fræðslan ekki fyrst og fremst að beinast að þeim sem eru með fordóma frekar en þeim sem verða fyrir þeim?
Joanna segir að fræðslan eigi einmitt að ná til þeirra sem eru með fordóma. Fólk sem verður vitni að fordómafullum ummælum geti einnig tekið þátt í umræðunni og þannig stuðlað að breytingum.Stundum er ekki hægt að sannfæra aðra en með því að ræða saman höfum við að minnsta kosti möguleika á að breyta einhverju.
Nemendur vilja ekki sérmeðferð
Á grundvelli rannsóknanna hafa verið mótaðar tillögur að sameiginlegri stefnu um inngildingu og aðgerðaáætlun fyrir háskólana fjóra.
Þær snúa meðal annars að móttöku nýrra nemenda, kennsluháttum, upplýsingagjöf og stuðningsþjónustu. Hver háskóli getur útfært tillögurnar í samræmi við eigin aðstæður.
Joanna leggur áherslu á að markmiðið sé ekki að veita erlendum nemendum sérstaka meðferð. „Nemendur segja okkur að þeir vilji ekki neina sérmeðferð. Þeir vilja einfaldlega geta tekið jafnan þátt í háskólalífinu og aðrir nemendur.“
Hún segir inngildingu vera gagnkvæmt ferli þar sem bæði einstaklingar og stofnanir leggi sitt af mörkum.
„Inngilding felst ekki í því að ætlast til þess að einn ákveðinn hópur breyti sér til að passa inn í hópinn sem fyrir er. Þetta er gagnkvæmt ferli. Stofnunin þarf líka að breytast.“
Innleiðingin er næsta skref
Þótt tillögurnar liggi fyrir er ekki tryggt að þær verði allar innleiddar.
Þurfa háskólarnir að innleiða þessar tillögur eða mega þeir einfaldlega láta það ógert?
Joanna segir verkefnið fyrst og fremst hafa snúist um að rannsaka stöðuna og þróa lausnir. Næsti áfangi sé að koma þeim í framkvæmd.
Hún bendir á að margt sé nú þegar vel gert innan háskólanna. Oft byggist góðir starfshættir þó á frumkvæði einstakra starfsmanna og mikilvægt sé að tryggja að sú þekking og reynsla nýtist til lengri tíma.
Lokaráðstefna verkefnisins verður haldin í dag í Norræna húsinu í Reykjavík. Þar verða niðurstöðurnar kynntar og fulltrúar háskólanna fjögurra ræða hvernig nýta megi tillögurnar í starfsemi þeirra.
Meðal fyrirlesara verður Dani de Torres frá Spáni sem hefur sérhæft sig í millimenningarlegri stefnumótun og aðferðum til að vinna gegn fordómum og staðalmyndum. Ráðstefnan er opin öllum áhugasömum og fer að hluta fram á íslensku og að hluta á ensku.
Joanna telur mikilvægt að líta ekki á inngildingu sem tímabundið verkefni heldur stöðuga vinnu sem þróist með samfélaginu.
„Mér finnst það í raun röng hugsun að líta á inngildingu sem verkefni. Inngilding er ekki eitthvað sem við ljúkum og hættum síðan að hugsa um. Þetta er stöðug vinna. Við þurfum alltaf að endurskoða það sem við gerum og breyta því sem virkar ekki.“
