Það verður víða rigning og nokkur vindur á landinu í dag. Sunnan 8-15 m/s og hvassast á norðvestanverðu landinu.
Það verður þó þurrt að kalla norðaustan- og austanlands. Vestast styttir upp í kvöld.
Hiti á bilinu 6–13 stig og hlýjast fyrir norðan.
Suðvestan 3-8 m/s á morgun, en 8-13 norðvestantil og við suðausturströndina. Rigning með köflum sunnanlands, en þurrt að mestu annars staðar. Á morgun kólnar heldur í veðri.
