Forgangsatriði að opna aftur eftir eldsvoða

„Forgangsatriðið er að koma markaðnum aftur í gang,“ segir Hrönn Svansdóttir framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar. „Við brettum upp ermar og opnum sem fyrst en það skýrist bara í dag og um helgina hvað við náum að vera snögg að því.“

Framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar segir forgangsatriði að opna nytjamarkaðinn á Smiðjuvegi aftur, hann sé mikilvægur bæði hjálparstarfi og íslensku samfélagi. Eldur kviknaði í versluninni í nótt.

Eldur kviknaði í Nytjamarkaði ABC í Kópavogi í nótt. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eldinn um klukkan tvö í nótt og allir bílar voru sendir á staðinn.

Vörumóttakan verst farin

Hrönn vaknaði við símtal frá Securitas klukkan tvær mínútur yfir tvö. Þegar hún kom á vettvang var búið að slökkva eldinn.

„Það var mikill reykur og slökkviliðið bara við sín störf. Það er mikið sót. Það er aðallega vörumóttakan sem er illa brunnin. En svo eru reykskemmdir og sót og vatn eflaust fyrir innan.“

Starfsfólk markaðarins hefur ekki fengið að fara inn í verslunina þar sem lögregla er við störf. Eldsupptök eru enn ókunn.

Markaðurinn mikilvægur íslensku samfélagi

Hrönn veit því ekki hvað tjónið er mikið. Hún telur brunaskemmdir einskorðast við vörumóttökuna en vörurnar séu líklegast allar ónýtar sökum reyks. Hún treystir því að markaðurinn verði fullur af nýjum vörum þegar hann verður opnaður aftur.

Nytjamarkaðurinn er helsta fjáröflun ABC barnahjálpar fyrir utan beina styrki.

„Þetta er líflína fyrir okkur og skiptir miklu máli,“ segir Hrönn. Þar að auki sé markaðurinn tækifæri til vinnu fyrir fólk sem ekki geti unnið annars staðar og lausn fyrir fólk sem hafi ekki tök á því að kaupa nýjar vörur.

„Þetta er mjög mikilvægt fyrir íslenskt samfélag,“ segir Hrönn.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.