Þriggja bíla árekstur varð á Hlíðarbraut við Teigarsíðu á Akureyri um klukkan 12:30 í dag. Þetta staðfestir Jóhann Olsen varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Hann segir að einhver meiðsli hafi orðið á fólki. Að minnsta kosti einn var fluttur á sjúkrahús. Bílarnir voru fluttir af vettvangi með kranabíl og Jóhann telur þá nokkuð tjónaða.
Hlíðarbraut er lokuð á meðan lögregla er að störfum.
