Freyja dregur erlent flutningaskip til hafnar

Áhöfn varðskipsins Freyju dregur erlent flutningaskip til hafnar á Akureyri. Stýrisbilun varð í skipinu um 210 sjómílur, um 389 kílómetra, frá Langanesi.

Varðskipið hélt frá Siglufirði í gærmorgun og kom að flutningaskipinu um klukkan fjögur í nótt. „Vel gekk að skjóta skotlínu yfir í flutningaskipið og skömmu síðar lauk áhöfn Freyju við að koma dráttartaug á milli skipanna,“ segir í tilkynningu Landhelgisgæslunnar.

Búist er við því að skipin komi til Akureyrar annað kvöld.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.