Blaðamennska stendur sannarlega á tímamótum þar sem almenningur hefur aldrei haft eins mikinn aðgang að upplýsingum. Þetta segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands en félagið stóð fyrir málþingi um stöðu fjölmiðla í breyttu umhverfi í dag.
Samhliða var gefin út könnun sem gerð var meðal félagsmanna BÍ þar sem meðal annars kom fram að upplýsingaóreiða væri talin stórt vandamál sem dragi úr tiltrú á hefðbundna fjölmiðla.
Á málþinginu fór Nic Newman frá Reuters Institute við Oxford-háskóla meðal annars yfir sviðið og minntist á hvernig neysla frétta er að færast frá hefðbundnum miðlum yfir á samfélagsmiðla.
Magnið af upplýsingum segir Sigríður að sé slíkt að það leggi til upplýsingaóreiðunnar.
„Kannski veit fólk ekki alveg hvernig það getur treyst þeim upplýsingum sem það er að ná sér í. Þá er einmitt svo mikilvægt að blaðamenn og fréttamiðlar séu í stakk búnir til að vinna þá mikilvægu vinnu að skaffa almenningi upplýsingar og staðreyndir sem fólk getur treyst á til að mynda sér skoðanir og taka upplýsta afstöðu, til dæmis í kosningum og atkvæðagreiðslum.“
Sum málefni líklegri til að framkalla neikvæð viðbrögð
Það sem vakti hvað mesta athygli í niðurstöðum könnunarinnar er að mikill meirihluti blaðamanna segist verða fyrir áreitni og fjandskap vegna fréttaflutnings. Þá hafi rúmur fjórðungur sleppt því að skrifa fréttir til að sleppa við möguleg fjandsamleg viðbrögð.
Sigríður segir þann fjölda hafa komið sér á óvart en vitað væri að sum umfjöllunarefni kölluðu á harðari viðbrögð en önnur, til dæmis mál tengd Ísrael og Palestínu, Covid, innrásin í Úkraínu og Samherjamálið.
„Þetta eru allt mál þar sem mikil upplýsingaóreiða er í gangi og fólk fær kannski hvað mesta fjandsemi til baka vegna skrifa um þau.“
