Hvöss norðvestanátt verður austanlands og gul viðvörun vegna vinds á Austfjörðum og sunnan Vatnajökuls. Á vef Vegagerðarinnar segir að ófært sé vegna hvassviðris í Hamarsfirði og Álftafirði.
Í öðrum landshlutum er mun hægari vindur og víða bjart. Það verður þó skýjað og dálítil él norðaustanlands. Frost 0–7 stig. Norðanáttin gengur niður í kvöld og nótt.
Þetta kemur fram í pistli veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Á morgun snýst í suðvestanátt og vestan til fer að snjóa. „Það hlýnar smám saman og úrkoman breytist í slyddu eða rigningu á láglendi síðdegis. Þurrt og kalt eystra, en dálítil snjókoma annað kvöld,“ segir í pistlinum.
Veðurviðvörun á Austurlandi vegna hvassviðris gildir til klukkan 15 síðdegis. Á Suðausturlandi tekur hún gildi klukkan 9 og varir til klukkan 18. Vindur verður á bilinu 15-23 m/s en hviður geta farið upp í 35 m/s. Varasamt ferðaveður, einkum fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
