Skattgreiðslur til íslenska ríkisins vegna viðskipta Baldvins Þorsteinssonar og systur hans Kötlu Þorsteinsdóttur með hlutabréf í útgerðarfélaginu Samherja á árunum 2019 til 2025 nema samtals um 7,2 milljörðum króna. Þetta kemur fram í svörum frá Baldvin Þorsteinssyni, forstjóra og annars stærsta hluthafa Samherja, við spurningum fréttastofu um þessi viðskipti og skattgreiðslur vegna þeirra.
Viðskiptin með hlutabréfin í Samherja hófust árið 2019 og eru við foreldra þeirra, Þorstein Má Baldvinsson og Helgu Steinunni Guðmundsdóttur. Segja má að viðskiptin hafi staðið yfir frá 2019 og fram á síðasta ár og hafa þau tekið miklum breytingum á þessum tíma.
Í fyrsta legg viðskiptanna árið 2019 var 43 prósenta hlutur í Samherja seldur til Baldvins og Kötlu. Kaupverðið var nokkurn veginn bókfært verð hlutarins, 206 milljónir evra, tæplega 28 milljarðar króna á þeim tíma. Þá seldi eignarhaldsfélag Þorsteins og Helgu, Eignarhaldsfélagið Steinn, þennan hlut til eignarhaldsfélags Baldvins og Kötlu með seljendaláni.
Um miðjan maí vorið 2020 var sagt frá því að Katla og Baldvin væru orðin stærstu hluthafar Samherja. Þetta gerðist eftir að Þorsteinn Már og Helga seldu hlutabréf sín í Samherja að stóru leyti yfir til þeirra systkina. Á sama tíma seldu hinir stærstu eigendur Samherja, hjónin Kristján Vilhelmsson og Kolbrún Ingólfsdóttir, hlutabréf sín í útgerðinni til barna sinna. Samherji sagði frá þessum viðskiptum á heimasíðu sinni. Í báðum þess viðskiptum skipti samtals 84,5 prósenta hlutur í Samherja um hendur.
Mikið var fjallað um þessi viðskipti í fjölmiðlum á þeim tíma. Síðastliðin ár hefur verið haldið áfram með þessi viðskipti í nokkrum liðum og lauk þeim ekki að mestu leyti fyrr en í fyrra.
Fjallað er um þessi áralöngu viðskipti og reynt að ná utan heildarsamhengi þeirra, meðal annars skattgreiðslur vegna þeirra, í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:Um miðjan maí vorið 2020 var sagt frá því að Katla og Baldvin Þorsteinsbörn væru orðin stærstu hluthafar útgerðarrisans Samherja. Mikið var fjallað um þessi viðskipti í fjölmiðlum og hafa þau verið kláruð í skrefum á síðustu árum.
Baldvin: Farið að lögum
Baldvin Þorsteinsson segir í svari til fréttastofu að viðskiptin með hlutabréfin hafi öll farið fram samkvæmt lögum.
Orðrétt segir í svari Baldvins um þetta: „Þessi viðskipti hafa öll farið fram lögum samkvæmt á grundvelli skýrra lagaákvæða. Má um það m.a. vísa til ákvæða XIV. kafla laga nr. 2/1995, um hlutafélög, einkum 133. gr. þeirra laga; 52. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og 4. gr. laga nr. 14/2004, um erfðafjárskatt.“
Fréttastofa spurði Baldvin framhaldsspurningar um samsetningu skattgreiðslnanna eftir að hann sagði frá heildarumfangi þeirra. Baldvin svaraði þeirri spurningu ekki sérstaklega.
Heildarupphæðin sem Baldvin nefnir sem skattgreiðslur, 7,2 milljarðar, stemmir við áætlanir Þetta helst um mögulegt skattspor viðskiptanna. Samkvæmt mati Þetta helst gætu þessar skattgreiðslur numið á bilinu 7 til 8,3 milljörðum króna.
Ef matið er rétt eru skattgreiðslurnar vegna viðskiptanna að langmestu leyti erfðafjárskattur, 6 milljarðar. Erfðafjárskattur nemur 10 prósentum af arfi. Þessar skattgreiðslur féllu til á árunum 2024 og 2025.
Restin af skattgreiðslunum vegna þessara viðskipta með Samherjabréfin er líklega skattur upp á milljarð af arði sem greiddur var út úr einu af eignarhaldsfélögunum sem tók þátt í viðskiptunum árið 2024. Þetta er Eignarhaldsfélagið Steinn sem er félagið sem upphaflega seldi félagi Baldvins og Kötlu hlutabréfin í Samherja með seljendaláni árið 2019. Skattprósentan í þessum legg er 22 prósent.
Um 300 milljónir króna hafa svo að öllum líkindum verið greiddar í tekjuskatt af starfsemi Steins á árunum 2022 til 2025 í tengslum við viðskiptin.
Bókfært verð og markaðsverð sjávarútvegsfyrirtækja
Árið 2020 snerist stór hluti umræðunnar um þessi viðskipti um undirliggjandi eignirnar, kvótann sem Samherji ræður yfir.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þáverandi þingkona Vinstri grænna, sagði til dæmis að eigendaskipti hlutabréfanna hjá Samherji endurspegluðu gallað kvótakerfi. Í ræðustól Alþingis sagði hún: „En sumargjafir Samherja til barnanna sinna er kannski í stærri kantinum. Þær nema tugum milljarða króna í tilfærslu frá eigendum Samherja til afkomenda sinna. Þetta endurspeglar stórgallað kvótakerfið með óheftu framsali og samþjöppun til stórra fjármagnseigenda.“
Eins og margoft hefur komið fram í opinberri umræðu á Íslandi þá eru bókfærðar eignir íslenskra útgerðarfyrirtækja vanmetnar vegna þess að þær taka ekki mið af ætluðu markaðsvirði þessara fyrirtækja og eigna þeirra. Þannig er til dæmis bókfært virði kvóta miklu lægra en markaðsvirði hans. Kvótinn er stór hluti af bókfærðum eignum sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi.
Í einni úttekt frá árinu 2022 var bókfært verð aflaheimilda íslenskra útgerðarfyrirtækja talið vera um 1/3 hluti af markaðsvirði þeirra. Aflaheimildirnar voru bókfærðar á 405 milljarða króna en ætlað markaðsverð var um 1200 milljarðar.
Til einföldunar má útskýra þetta þannig að ef kvóti sjávarútvegsfyrirtækis er bókfærður á 1 milljarð þá er þetta villandi í þeim skilningi að fyrirtækið getur í reynd mögulega selt hann á 3 milljarða.
Í þessum viðskiptum hér með hlutabréfin í Samherja var miðað við bókfært verð á hlutabréfunum, líkt og yfirleitt er gert í slíkum viðskiptum með hlutabréf í óskráðum félögum.
Verðmætin sem skiptu um hendur þegar þessi nærri helmingshlutur í Samherja var seldur endurspegla því bara bókfært verð en ekki raunveruleg verðmæti, markaðsverðmæti hlutabréfanna. Skattgreiðslurnar í viðskiptunum byggja sömuleiðis á bókfærðu verði, ekki ætluðu markaðsverði. Þetta er líka fullkomlega eðlilegt og lögum samkvæmt.
Áætlað markaðsverð hlutabréfa í Samherja kann að vera tvisvar til þrisvar sinnum hærra en bókfært verðmæti þeirra, meðal annars af því að kvótinn er ekki bókfærður á markaðsvirði.
