Heimsóknir til sjúklinga á Landakoti eru bannaðar tímabundið vegna covid-smita. Andri Ólafsson, upplýsingafulltrúi Landspítalans, segir auknar smitvarnir bundnar við öldrunardeildina.
Takmarkaðar heimsóknir og grímuskylda hafa verið frá því í síðustu viku eftir að nokkrir sjúklingar á sömu deild greindust með COVID-19. Tilfellin eru bundin við eina deild og aðgerðir undanfarinna daga miðast að því að koma í veg fyrir útbreiðslu eins og hægt er.
Andri segir að smitum fjölgi jafnan á veturna. Sjúkdómurinn geti lagst þungt á eldra fólk og veikburða, eins og inflúensa.
