Vill áfrýja umdeildum sýknudómi í nauðgunarmáli til Hæstaréttar

Ríkissaksóknari hefur óskað eftir leyfi til að áfrýja klofnum sýknudómi Landsréttar í nauðgunarmáli til Hæstaréttar.

Þetta staðfestir Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari við fréttastofu, en Vísir greindi fyrst frá.

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi mann í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun. Hann áfrýjaði dómnum til Landsréttar sem sýknaði hann þar sem tveir dómarar af þremur töldu ósannað að hann hefði brotið á konunni því hún hefði samþykkt að hann mætti beita hana hörku í kynlífi.

Þriðji dómarinn vildi sakfella manninn og sagði hann hafa beitt hana mun meira ofbeldi en hún hafði samþykkt.

Meðal áverka sem konan hlaut voru rifbeinsbrot, heyrnartap og tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind.

Málið hefur vakið mikla athygli í samfélaginu. Meðal þeirra sem gagnrýndu dóm Landsréttar voru samtökin BDSM á Íslandi. Yfir 9 þúsund hafa skrifað undir lista, sem stofnaður var vegna sýknudómsins, þar sem úttektar á meðferð kynferðisofbeldismála er krafist.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.