Hrekkjavaka sækir á en gerir ekki út af við öskudag

Umstang í kringum hrekkjavöku hefur gjörbreyst á Íslandi og þekktist ekki fyrir örfáum áratugum. Nú klæðast börn grímubúningum á hrekkjuvöku en líka á öskudag, sem var aðaldagurinn hér áður fyrr.

Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur og aðjúnkt við Háskóla Íslands segir að hrekkjavaka hafi þó ekki gengið af öskudegi dauðum:

„Nei, ég myndi nú ekki alveg segja það. Þetta eru svona að einhverju leyti svolítið ólíka hátíðir eða ólíkir hátíðisdagar fyrir utan náttúrulega að vera á alveg sitthvorum tíma ársins. Þá er eins og hrekkjavakan feli í sér aðeins meiri hrylling heldur en öskudagurinn. Og það sé svona einkenni hennar. Og þá er náttúrulega gengið í hús en á öskudeginum í fyrirtæki. Þannig að þetta er svona aðeins ólíkt þó að það sé margt líkt líka með búningunum og þessu öllu saman.“

Rætur hrekkjavöku eru keltneskar og voru uppskeruhátíð. Veturnáttablót voru haldin fyrir kristnitöku á Íslandi á þessum tíma. Enska orðið Halloween er stytting á allraheilagramessu á ensku. Dagrún Ósk segir að viðfangsefni hrekkjavöku bæði í auglýsingum og bíómyndum með alls kyns hryllingi, draugalegum skreytingum húsa og fleira, hafi áhrif.

„Hrekkjavakan hefur vaxið mjög ört undanfarin ár og alveg hefur gjörbreyst frá því hvernig þetta var bara fyrir örfáum árum.“

Öskudagur ásamt bolludegi og sprengidegi er upphaf föstu fyrir páska og á rætur í kaþólsku. Dagrún telur að á öskudag sé kötturinn ennþá slegin úr tunnunni á barnaskemmtunum um landið. En öskupokar, sem voru í leyni nældir aftan á grandalausa vegfarendur, hafi hins vegar sungið sitt síðasta. Fólk hafi ekki jafnmikinn tíma og áður að föndra öskupoka og þá sé það að fá nammi í skiptum fyrir söng meira spennandi en öskupokar.

„Svo er það þannig held ég að Íslendingar eru mjög skemmtanaglatt fólk, spennt fyrir nýjungum, en þykir líka stundum vænt um þessar svona okkar hefðir. Þannig að ég held að þetta geti alveg lifað í sátt og samlyndi hrekkjavakan og öskudagurinn,“ segir Dagrún Ósk Jónsdóttir.