Húnabyggð varð til við sameiningu Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar 2022. Þörf er á að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins en þrjú eru í gildi, frá Blönduósbæ, frá Húnavatnshreppi og frá Skagabyggð. Nú á að sameina þau í eitt.
33 umsagnir bárust og sneru þó nokkrar þeirra að Húnavallaleið. Vegagerðin hefur sagt hana hagkvæma framkvæmd sem stytti hringveginn um 14 kílómetra.
Svavar Pálsson er sveitarstjóri í Húnabyggð. Hann segir alla úrvinnslu umsagna fram undan en að Húnavallaleið sé ekki forgangsmál.
„Staðan er bara sú að Húnabyggð hefur ekki metið það svo að það sé tilefni til þess að forgangsraða með þessum hætti. Sveitarfélagið hefur lögbundna skyldu til þess að horfa til umsagna og taka mið af því við sína ákvörðun.“
Einstaklingar og fyrirtæki vilja Húnavallaleið
Í athugasemdum frá einstaklingum og fyrirtækjum sem flytja vörur eða fólk á milli landshluta er lögð áhersla á að Húnavallaleið verði raunverulegur valkostur í framtíðinni.
Ef Húnabyggð samþykkir aðalskipulagið án Húnavallarleiðar gæti það orðið til þess að erfitt verði að ráðast í styttinguna á hringveginum í framtíðinni. Nýtt aðalskipulag á að gilda til ársins 2035.
Vegagerðin ítrekaði í umsögn sinni beiðni um að möguleiki á styttingu hringvegar yrði í skipulaginu. Svavar kannast ekki við togstreitu milli sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar.
„Ég kannast nú ekki við að það sé togstreita þarna á milli. Vegagerðin er einfaldlega að varpa ljósi á þennan möguleika. Það eru engar kröfur í umsögninni að þessu sinni um.“
