Stjórnskipunar – og eftirlitsnefnd Alþingis ætlar að hefja frumkvæðiskönnun á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar og hvort ráðherra hafi sagt þinginu ósatt þegar hann var spurður út í uppsögn forstjóra fyrirtækisins.
Beiðni þessa efnis, sem þingmenn Viðreisnar lögðu fram, verður tekin fyrir á fundi nefndarinnar í dag.
Ingveldur Anna Sigurðardóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og annar varaformaður nefndarinnar gerir ráð fyrir að beiðnin verði samþykkt.
„Ráðherra hefur gefið óskýr svör gagnvart þinginu frá 19. október sem og í gær. Það er hlutverk stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að vera ákveðið aðhald og rannsaka svona mál. Þannig að við munum taka þetta til skoðunar,“ segir Ingveldur. Fyrsta skrefið verði að kalla eftir gögnum þar á meðal fundargerðum.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefur hafnað því að hafa sagt þinginu ósatt og hefur janframt hvatt nefndina til að taka þetta mál til skoðunar. Ingveldur segir mikilvægt að rannsóknin taki ekki of langan tíma.
“Vonandi tekur þetta bara stuttan tíma. Því þetta mál er af þannig stærðargráðu og varðar eitt mikilvægasta fyrirtæki landsins,“ segir Ingveldur.
