Um 8,5 prósent eru undir lágtekjumörkum samkvæmt nýrri greiningu Hagstofunnar á lífskjörum landsmanna. Samtals eru það 34 þúsund einstaklingar.
Þá er miðað við fólk sem býr á heimilum þar sem ráðstöfunartekjur eru undir 60% af miðgildi ráðstöfunartekna í landinu að teknu tilliti til heimilisstærðar.
Hlutur þeirra sem eru undir lágtekjumörkum hefur sveiflast frá 7,4 prósentum í 9,0 prósent síðustu fimm árin. Flestir voru undir lágtekjumörkum 2022 en fæstir 2023.
Karlar eru mun líklegri en konur til að vera undir lágtekjumörkum, 9,8 prósent karla féllu undir viðmiðið en 7,2 prósent kvenna.
Leigjendur voru margfalt líklegri til að búa undir lágtekjumörkum en þeir sem eiga heima í eigin húsnæði, 23,2 prósent samanborið við 4,2 prósent.
13,1 prósent barna bjó á heimilum undir lágtekjumörkum og 16,7 prósent einstaklinga með erlendan bakgrunn. Til samaburðar voru 5,5 prósent landsmanna með innlendan bakgrunn undir lágtekjumörkum.
Þegar horft er til allrar þjóðarinnar er minnst um það á Íslandi, af löndum Evrópu, að fólk sé undir lágtekjuhlutfalli. Þegar litið er til barna er Ísland fimmta neðst á lista yfir hlutfall þeirra sem eru undir lágtekjuhlutfalli.
Karlar eru líklegri til að vera undir lágtekjumörkum en konur

Discover more from UM LEGACY PRESS LTD
Subscribe to get the latest posts sent to your email.