Olíufélögin skuldi neytendum verulega verðlækkun

Lækkun á heimsmarkaðsverði hefur ekki skilað sér í bensínverði á Íslandi samkvæmt greiningum ASÍ og FÍB.

„Allar tölur sýna okkur að álagningin er bara í hæstu hæðum um þessar mundir og þessi félög skulda neytendum verulega lækkun,“ segir Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda.

Samkvæmt greiningu FÍB hefur meðalverð bensínlítrans hækkað um 27 krónur frá 1. september þegar tímabundinni lækkun virðisaukaskatts lauk. Meðalverð á dísillítra hefur hækkað um 51 krónu.

Runólfur að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi val um ódýrara eldsneyti því Costco sé á allt annarri vegferð en hin olíufélögin.

„Costco kaupir af einu olíufélaganna eldsneyti og um þessar mundir er bensínlítrinn hjá Costco 14 krónum ódýrari heldur en þar sem hann er ódýrastur hjá Orkunni, sem auglýsti sig löngum alltaf ódýrasta. Og verðið er komið í 45 króna mun þegar við tökum dýrustu verð sem finnast á stöðvum. Það segir sig sjálft að álagningin ætti að vera miklu nær því sem við erum að sjá hjá Costco,“ segir Runólfur.

ASÍ segir meðaltal lægsta bensínverð á Íslandi hafa hækkað um 35% á þessu ári en 40% séu opinber gjöld tekin út fyrir sviga.

Runólfur vill að stjórnvöld grípi inn í líkt og gert er á mun stærri mörkuðum eins og Belgíu, Hollandi, Þýskalandi og Danmörku.

„Það sé einhvers konar verðlagsþak eða eitthvað gert því markaðnum virðist ekki vera treystandi til að iðka eðlilega samkeppni. Það fyrsta sem hægt væri að gera væri að auka kröfur varðandi sýnileika á verði. Það er eins og ég segi, það þýðir ekki alltaf bara að horfa út undan sér og gera ekki neitt.“

Lækkanir skili sér seint en hækkanir strax

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir hækkanir skila sér fyrr út í verðlag heldur en lækkanir.

„Seðlabankinn birti rannsókn í sumar þar sem þau könnuðu gengisstyrkingu krónunnar. Að meðaltali tók það fimm daga fyrir verðlag að hækka en 30 daga þegar verðið lækkaði. Þetta kannski rímar svolítið við þá tilfinningu sem fólk hefur að hækkanir séu fljótari að skila sér heldur en lækkanir,“ segir Breki.

Hann segir erfitt að fylgjast með bensínverði því það breytist hratt.

„Það er mjög erfitt að fylgjast með bensínverði og segja hvað er, innan gæsalappa, rétt verð. En þetta er svona í samræmi við tilfinninguna sem fólk hefur og þær rannsóknir sem Seðlabankinn hefur gert.“