Samninganefnd Kennarasambands Íslands hefur samþykkt tillögu ríkissáttasemjara varðandi kjarasamninga við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Þessu greindi Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, frá í kvöldfréttum sjónvarps.
Nokkur óvissa kom upp varðandi forsenduákvæði í samningum kennara og möguleikinn á uppsögn hans bar á góma. Samningurinn gildir til 1. apríl 2028.
Kennarar höfðu frest til miðnættis til að samþykkja tillögu ríkissáttasemjara sem var lögð fram á fundi þeirra með sveitarfélögum í dag.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari sagði fyrr í dag að í tillögunni væru ákveðnir skilmálar um framhald þeirrar vegferðar sem kveðið er á um í kjarasamningum um virðismat á störfum kennara. Í tillögunni eru tekin af öll tvímæli um hvernig vinnunni verður fram haldið.
Samband sveitarfélaga hafði þegar samþykkt tillöguna.
