Svokallaðar skvísur fyrir börn uppfylla almennt ekki næringarviðmið. Næringarfræðingur segir mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um hvað þeir bjóða börnum sínum upp á og noti slíkar vörur í hófi. Dæmi séu um að leikskólabörn kunni ekki að borða með skeið þar sem þau eru vön að sjúga matinn úr skvísu.
Meira en helmingur af úrvalinu eru skvísur og fingramatur
Næring úr barnamauki í skvísum og fingramat fyrir börn er ekki í samræmi við viðmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, samkvæmt nýrri rannsókn innan Háskóla Íslands. Birna Þórisdóttir, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild Háskólans, fór fyrir rannsókninni. Fyrstu niðurstöður benda til þess að engin tegund af skvísum eða fingramat uppfylli viðmiðin, einungis fjórðungur af barnamauki í krukkum, sem er selt á Íslandi, uppfylli viðmiðin og um þriðjungur grautarmjöls.
Rannsóknin náði yfir um 400 tegundir af tilbúnum barnamat sem eru fáanlegar á Íslandi.
Meira en helmingurinn af barnamat í íslenskum verslunum er mauk í skvísum eða unninn fingramatur, oft í formi ávaxtahlaups. „Bæði skvísurnar og fingramaturinn eru bara eiginlega allar að falla á þessum viðmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar fyrir næringu,“ segir Birna. „Þetta eru oft vörur sem innihalda ávaxtaþykkni, þar sem er búið að vinna ávexti ofsalega mikið, þannig að þá erum við komin með vörur sem eru með mikið sykurinnihald í raun og veru,“ segir Birna.
En hver er munurinn á sykri í þessum vörum og ávaxtasykri úr ferskum ávöxtum? „Ef maður borðar ávexti þá er í raun og veru sykurinn inni í frumum og þá hefur það allt önnur áhrif á líkamann. Þá er líkaminn lengur að frásoga þennan sykur þannig að hann hefur minni áhrif á blóðsykurssveiflur og bara er í allt öðru magni líka heldur en þegar er búið að vinna þetta og þétta,“ segir Birna.
Fullur magi án orku og næringar
„Svo eru þetta líka oft vörur sem eru með mjög litla næringarþjöppun sem þýðir það að magi barnsins getur fyllst bara af magninu áður en barnið er búið að fá þá orku og þau næringarefni sem það þyrfti að fá úr máltíðinni.“
Þar sem þessar vörur hafa ekki verið lengi á markaði skortir langtímarannsóknir á áhrifum þeirra. „Leikskólakennarar og aðrir tala um það að fá til sín börn sem bara kunna ekki almennilega að borða með skeið, eða hvað þá með hníf og gaffli, þegar þau byrja í leikskóla og það sé orðið svolítið erfitt oft að gefa börnum að borða út af því að þau kunni í raun og veru aðallega að sjúga í sig matinn,“ segir Birna.
Margt bendir til að mikil neysla á slíkum mat geti leitt til matvendni. „Þá fá börnin ekki þessa þjálfun í að borða alls konar bragð og alls konar áferð.“
