Lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu hefur ekki skilað sér í vasa íslenskra neytenda, segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
Heimsmarkaðsverð hefur lækkað mikið frá því að niðurstöður þingkosninga í Bandaríkjunum lágu fyrir á miðvikudag. Hráolía hefur ekki verið ódýrari í tvo mánuði.
Þrátt fyrir þetta og þrátt fyrir að gengi íslensku krónunnar sé sterkt, hefur lækkunin ekki skilað sér í vasa neytenda, segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
- september var virðisaukaskattur á eldsneyti hækkaður aftur úr 11% í 24%.
„Síðan þá hefur bensín að meðaltali hækkað um um það bil 57 krónur á lítra og dísilolía hefur hækkað enn meira,“ segir Runólfur.
Bíður eftir skilaboðum frá Samkeppniseftirliti
Hann segir svipaða þróun hafa orðið á Íslandi og í nágrannalöndum okkar þegar heimsmarkaðsverð hækkaði.
„Sem dæmi urðu verulegar breytingar á danska markaðnum. Þær breytingar hafa að öllu leyti skilað sér til baka. Og meira að segja er bensínið í dag á danska markaðnum um það bil 30 íslenskum krónum ódýrara en það var 1. september síðastliðinn, sem skýtur skökku við miðað við þá raun sem við sjáum hér.“
Runólfur segir olíufélögin viljandi halda uppi hárri álagningu. Hann segir hljóta að styttast í skilaboð frá Samkeppniseftirlitinu sem fékk aukna valdheimild í sumar til að rannsaka olíumarkaðinn.
