Heilbrigðiseftirliti Suðurlands barst ábending nýverið vegna mögulegrar veggjalúsar á gistiheimili.
Starfsmenn eftirlitsins fóru á staðinn og smit fannst í fjórum herbergjum.
Meindýraeyðir hefur ekki staðfest að aðgerðir hafi tekist og herbergin eru því enn lokuð gestum.
Skiptir miklu máli að rekstraraðili bregðist rétt við
Sigrún Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Hún segir að forvarnir hafi strax farið í gang og rekstraraðili gistihússins fékk meindýraeyði til að útrýma lúsinni.
Herbergin voru hituð í yfir sextíu gráður og eru enn lokuð gestum.
„Og síðan er verið að bíða eftir aftur að meindýraeyðir staðfesti að aðgerðirnar hafi náð fullnægjandi árangri.“
Samkvæmt reglugerð er meindýraeyðum skylt að tilkynna um tilfelli veggjalúsa og láta vita innan þriggja daga frá því verki lýkur.
Reglugerð um hollustuhætti
Í 15.grein reglugerðar um hollustuhætti er talað um skyldur meindýraeyða.
Þeir sem eyða meindýrum skulu að lokinni vinnu við útrýmingu á rottum eða veggjalús gera skýrslu um verkið og senda til viðkomandi heilbrigðisnefndar.
Þar skal koma fram hver er verkbeiðandi, um hvaða meindýr var að ræða, hver framkvæmdi verkið og hvenær, hvaða útrýmingarefni voru notuð til verksins og varúðarráðstafanir sem gripið var til í því skyni að vernda heilsu manna, dýra annarra en meindýra og umhverfið.
Skýrslu skal skila innan þriggja virkra daga ef um er að ræða útrýmingu á veggjalús en innan mánaðar ef um er að ræða útrýmingu á rottum.
Sigrún segir það oft gleymast að meindýraeyðir beri þá skyldu.
Veggjalús nærist á blóði
„Þetta er lítið flatt, brúnleitt skordýr og maður getur leitað að pöddunum sjálfum eða svona svörtum punktum eftir þær, eða litlum blóðblettum á rúmfötum eða í saumum dýnunnar,“ segir Sigrún.
Veggjalús getur valdið óþægindum. Hún nærist á blóði, bit hennar geta valdið kláða og útbrotum.
Veggjalús getur komið upp á hvaða gististað sem er. Forvarnir bæði ferðamanna og rekstaraaðila gististaða skipta öllu máli við að útrýma henni og koma í veg fyrir útbreiðslu.
„Þegar maður kemur inn á gististað er skynsamlegt að kíkja í saumana á dýnunni, eða í rúmgrindina, hvort það eru einhver merki um svona skorkvikyndi. Og það er mjög góð regla að geyma aldrei farangurinn sinn á rúminu.“
