Tveir í bíl sem hafnaði í Kleifá

Björgunarsveitir og viðbragðsaðilar eru á vettvangi alvarlegs slyss á sunnanverðu Snæfellsnesi. Bifreið fór þar út í á.

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út.

Búið er að kalla út björgunarsveitir og viðbragðsaðila vegna bíls sem fór út í á á Snæfellsnesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið á vettvang. Tveir voru í bílnum að sögn lögreglunnar á Vesturlandi.

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.

Jónas Hallgrímur Ottósson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á Vesturlandi, segir að tveir hafi verið í bílnum. Slysið átti sér stað rétt áður en komið er að Vatnaleið.

Annar þeirra sem voru í bílnum komst út af sjálfsdáðum en hinn þurfti aðstoð. Ekki er vitað um líðan þess seinni. Vinna stendur enn yfir á vettvangi.

Fréttin verður uppfærð.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.