Skiptastjóri í þrotabúi veitingafyrirtækis sem Helgi Magnús Hermannsson átti hefur höfðað mál gegn honum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til að fá samþykkt atvinnurekstrarbann gegn honum. Um er að ræða skiptastjóra þrotabús Veislunnar ehf. sem er veitingafyrirtæki sem Helgi Magnús átti og skildi eftir sig 215 milljóna króna skuldir. Þetta staðfestir skiptastjórinn Ólafur Björnsson, lögmaður á Selfossi, í samtali við fréttastofu. Ólafur gekk frá þrotabúi Veislunnar nú í haust og fundust engar eignir í búinu upp í þessar skuldir.
Helgi Magnús hefur ítrekað verið til umfjöllunar í fjölmiðlum eins og Vísi.is síðustu mánuðina vegna fyrirtækja sem hann hefur átt sem farið hafa í þrot eða verið lokað af yfirvöldum.
Í síðustu viku var sagt frá því að Skatturinn og lögreglan hefðu innsiglað Hamborgarafabrikkuna á Höfðatorgi. Rúmlega tvítugur sonur Helga er skráður fyrir móðurfélagi Hamborgarafabrikkunnar ásamt Jóni Erni Jakobssyni, tæplega sjötugum manni sem lengst af hefur verið í rekstri tengdum sjávarútvegi. Þeir eignuðust Hamborgarafabrikkuna hins vegar aðeins í mars og hafa því einungis átt veitingastaðinn í rúmlega hálft ár.
Slíkt atvinnurekstrarbann var einungis sett inn í lög um gjaldþrotaskipti árið 2022. Í slíku banni felst að einstaklingur má ekki koma að rekstri félaga í þrjú ár. Eins og segir í lögunum þá eru skilyrði atvinnurekstrarbanns að viðkomandi einstaklingur teljist ekki hæfur til að stýra félagi sem rekið er með takmarkaðri ábyrgð eigenda vegna skaðlegra eða óverjandi viðskiptahátta við stjórnun félags.
Fjallað var um mál Hamborgarafabrikkunar í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í síðustu viku. Þáttinn má hlusta á hér:Fjárfestirinn Helgi Magnús Hermannsson tengist mörgum félögum sem hafa farið í þrot á síðustu misserum. Skatturinn lokaði Hamborgarafabrikkunni sem Helgi tengist í síðustu viku. Skiptastjóri eins fyrirtækis vill Helga í bann frá rekstri félaga.
Tengsl við 23 félög
Þegar farið er yfir rekstrarsögu Helga Magnúsar síðustu ár kemur í ljós röð gjaldþrota hjá félögum sem hann hefur yfirleitt átt eða tengst í stuttan tíma. Þetta á til dæmis við um hamborgarastaðinn Brixton sem var í Tryggvagötu í Reykjavík.
Róbert Aron Magnússon var eigandi Brixton áður en Helgi Magnús og Jón Örn eignuðust þann stað í mars. Róbert er kannski betur þekktur undir viðurnefninu Robbi Chronic en hann hefur verið þekktur plötusnúður í Reykjavík í áratugi. Hann segir að engir peningar hafi skipt um hendur í þeim viðskiptum. Helgi Magnús og Jón Þór hafi bara tekið yfir rekstur og skuldbindingar Brixton. Hann segir að á þessum tíma hafi legið fyrir að þeir ætluðu að opna Litlu-Fabrikkuna í húsnæðinu þegar staðurinn var seldur í mars. Brixton varð svo gjaldþrota skömmu síðar og er nú í skiptameðferð.
Helgi Magnús Hermannsson vill ekki koma í viðtal við fréttastofu þegar eftir því er leitað. Hann segist ekki eiga Hamborgarafabrikkuna eða rekstrarfélagið Nautafélagið og heldur ekki hamborgarastaðinn Brixton sem fór í þrot fyrr á árinu og er nú í gjaldþrotameðferð. Líkt og kemur fram hér að framan er rúmlega tvítugur sonur Helga skráður fyrir hlut í Nautafélaginu. Aðspurður segist Helgi Magnús hins vegar tengjast Litlu-Fabrikkunni en jafnframt að engin tengsl séu á milli Litlu-Fabrikkunnar og Brixton en fyrrnefndi veitingastaðurinn er í sama húsnæði í Tryggvagötu og Brixton. Helgi Magnús hefur komið fram í fjölmiðlum sem rekstraraðili Litlu-Fabrikkunnar og talað um tengslin á milli þessa staðar og Hamborgarafabrikkunnar.
Helgi Magnús tengist alls ellefu félögum í hlutafélagaskrá. Þetta eru ekki bara veitingastaðir heldur líka dekkjaverkstæði, fasteignafélög, garðyrkjufyrirtæki og vörubílafyrirtæki.
Þegar söguleg gögn um fyrirtækjatengsl Helga Magnúsar eru skoðuð sést að í gegnum tíðina hefur hann hefur haft tengsl við alls 23 félög, meðal annars sem prókúruhafi og eigandi. Mörg af þessum fyrirtækjum hafa orðið gjaldþrota.
