Vistaskipti Ingvars vonbrigði

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir það vonbrigði að þingmaðurinn Ingvar Þóroddsson hafi gengið í raðir Sjálfstæðisflokksins.

„Ja, vonbrigði, vonbrigði, þetta er svosum búið að vera svosum í kortunum, hefur manni skilist,“ sagði Inga eftir ríkisstjórnarfund í dag. Ingvar tilkynnti um úrsögn sína úr Viðreisn og vistaskipti til Sjálfstæðisflokksins í gær. Hann vísaði meðal annars til skattahækkana ríkisstjórnarinnar í tengslum við hallalaus fjárlög sem ástæðu fyrir breytingunni.

„Auðvitað eru alltaf vonbrigði þegar einstaklingur finnur sig knúinn til þess af öllum flokkum að vaða yfir í Sjálfstæðisflokkinn,“ sagði Inga sem telur flokkaskiptin einkennast af mótsögn, sérstaklega þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi barist harkalega gegn öllu sem tengdist viðræðum við Evrópusambandið og samstarfi við Evrópu.

„Þar sem í rauninni hjarta Ingva slær. Svo þetta er svona svolítið mótsagnakennt,“ sagði hún.

Hefur ekki áhrif á verkefni ríkisstjórnarinnar

Fráhvarf Ingvars hefur ekki áhrif á verkefni ríkisstjórnarinnar að mati Ingu. Jón Gnarr, fyrrum þingmaður Viðreisnar, og Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrum þingmaður Flokks fólksins, höfðu áður yfirgefið ríkisstjórnarflokkana. Sjálfur sagði Ingvar í fréttum í gær að samtöl hans við Sjálfstæðisflokkinn hefðu byrjað eftir að Jón Gnarr sagði sig úr Viðreisn.

Inga segir þetta ekki áhyggjuefni fyrir ríkisstjórnina.

„Þeir sem voru farnir áður eru búnir að sýna það að þeir eru alveg menn sinna orða,“ sagði hún.

„Þeir hafa staðið með ríkisstjórninni í öllum sínum atkvæðagreiðslum. Þannig að hingað til höfum við verið mjög sterk og höfum enga ástæðu til að ætla að þessir góðu menn muni á nokkurn hátt ganga gegn því sem þeir þegar hafa gefið út. Þeir standa með sinni ríkisstjórn og standa með okkar málefnum og við treystum 100% á þá.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.