„Það sem er mjög sláandi er hve stór hluti stjórnenda hefur lent í flækjum vegna regluverks, reglna sem eru ekki skýrar eða afgreiðslu hjá stjórnsýslunni sem er ófyrirsjáanleg eða dregst á langinn,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Spegillinn ræddi við hann að loknum fundi sem samtökin héldu í Hörpu 12. nóvember.
Á fundinum var kynnt ný könnun á viðhorfi og reynslu stjórnenda iðnfyrirtækja af opinberri stjórnsýslu. Þar kom meðal annars fram að:
- Um 72% stjórnenda fyrirtækja í iðnaði telja að einfaldari og skýrari reglur og styttri og fyrirsjáanlegri afgreiðsla myndu hafa mjög eða frekar mikil jákvæð áhrif á rekstur þeirra.
- Styttri og fyrirsjáanlegri afgreiðsla hins opinbera og einfaldari og skýrari reglur myndu skila mestum ávinningi fyrir rekstur þeirra, mun meiri en lækkun gjalda vegna eftirlits og leyfa.
- Málsmeðferð hins opinberra olli töfum eða frestun á verkefnum eða fjárfestingum hjá 58% fyrirtækja á síðasta fulla rekstrarári og hjá 21% voru tafirnar verulegar.
- Um 64% fyrirtækja þurftu að skila sömu eða sambærilegum upplýsingum til fleiri en eins opinbers aðila á síðasta fulla rekstrarári og 40% þrisvar eða oftar.
Mun þyngri reglubyrði en í Evrópusambandinu
Megintilefni fundarins var að fjalla um tækifæri til einföldunar á regluverki og stjórnsýslu. Miðað við það sem kom fram á fundinum er töluvert um þau.
Sigurður benti á að samkvæmt niðurstöðum norrænu ráðherranefndarinnar mældist Ísland nú með þyngri reglubyrði en þau lönd sem við berum okkur helst saman við. Á kvarðanum 0-6 fékk Ísland 2,7, Noregur 2,3 en meðaltal ESB er 1,5.
Sigurður segir að niðurstaðan sýni annars vegar að hér séu meiri og þyngri reglur og hins vegar að hér sé meira flækjustig í stjórnsýslunni. Gullhúðun ESB-reglna, að þær séu innleiddar með óþarflega ströngum hætti, ráði miklu. „Ég myndi halda að það séu hátt í eitt þúsund dæmi um gullúðun í íslensku regluverki, svona miðað við þær upplýsingar sem við höfum,“ segir Sigurður. Þetta valdi því að hér verði til færri störf og minni verðmæti sem komi niður á lífskjörum.
Stjórnendur iðnfyrirtækja segja að tafir á afgreiðslu og óskýrt regluverk komi niður á rekstrinum. Reynsla þeirra af samskiptum við opinberar stofnanir er misjöfn og byggingafulltrúar fá verstu umsögnina.
Góð reynsla af Vinnueftirlitinu, slæm af byggingafulltrúum
Í könnuninni voru stjórnendur líka spurðir um reynslu sína af samskiptum við 13 opinbera aðila. Vinnueftirlitið fékk bestu dómana en rúmlega 60% sögðu reynslu af samskiptum jákvæða. Versta reynslan var af samskiptum við embætti byggingafulltrúa en 40% sögðu hana hafa verið neikvæða.
En getur ekki verið að þeir sem svöruðu séu bara óánægðir með niðurstöðuna frekar en vinnubrögð viðkomandi stofnana?
„Það getur verið að fólk sé kannski ekki alltaf ánægt með niðurstöðuna. En það breytir því ekki að stofnanirnar eru ólíkar og með vinnubrögð sumra stofnana ríkir heilt yfir ánægja,“ segir Sigurður. Talsverð óánægja sé á hinn bóginn með vinnubrögð annarra. „Og við sjáum það til að mynda með embætti byggingarfulltrúa […] þá verðum við að horfa til þess að það eru 50-60 embætti byggingarfulltrúa á landinu, sem þýðir að það eru 50-60 útgáfur af byggingarreglugerðinni vegna þess að á hverjum stað er túlkunin ólík. Þannig að það sem má í Garðabæ gengur ekki í Mosfellsbæ svo dæmi sé tekið,“ segir Sigurður.
Einnig séu skýr dæmi um að túlkun á því hvernig eigi að framfylgja reglum breytist, jafnvel þótt lög eða reglur hafi ekkert breyst. Þetta hafi meðal annars komið fram í tengslum við skattahvata til rannsókna og þróunar. „Þær endurgreiðslur hafa gengið mjög illa núna um talsvert skeið. Lögin breyttust ekkert en framkvæmdin breyttist,“ segir Sigurður. Þetta hafi valdið mörgum fyrirtækjum erfiðleikum. Talsvert sé einnig um slík dæmi hjá Skattinum en skattalögin hafi þó ekkert breyst. „En túlkunin hefur breyst og þetta kallar stundum jafnvel á margra ára baráttu bara til þess að fá úr því skorið hvaða reglur gilda.“
Á fundinum var rætt við Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra sem sagði að í stjórnsýslunni væri unnið að einföldun og auknu gagnsæi.
Tíu tillögur um einföldun
Á fundinum voru kynntar tíu tillögur samtakanna um hvernig hægt er að einfalda regluverkið og draga úr flækjum og er ítarlegri útgáfa á vef samtakanna.
Fyrirsjáanleg framkvæmd
- Aukið gagnsæi við afgreiðslu mála og lögbundin tímamörk virt.
- Sambærileg mál fái sambærilega afgreiðslu.
- Frammistaða stofnana mæld og birt.
- Frekari sameiningar með mælanlegum markmiðum um betri þjónustu.
- Athugasemdir stofnana komi fram á fyrstu stigum.
- Gögnum skilað einu sinni til sömu stofnunarinnar.
- Skráning í stað starfsleyfis þar sem áhætta er lítil. Áfram verði haldið að endurskoða grundvöll starfsleyfis fyrirtækja eftir áhættumati.
Regluverk og lagasetning
- Einföldun verði viðvarandi verkefni.
- EES-reglur án gullhúðunar og skipulögð afhúðun.
- Innleiðing lagabreytinga taki mið af áhrifamati.
Ekki hefur tekist að fá niðurstöður á sex árum
Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, sat í pallborði á fundinum og ræddi meðal annars um mál sem hún sagði að hefði þvælst í kerfinu í um sex ár. Í viðtali við Spegilinn sagði hún að málið snerist um hvernig svínabú gætu losað sig við skít og hland sem kemur undan dýrunum. Ný túlkun á reglugerð hefði valdið því að málið sé í uppnámi. Boðuð hafi verið ný reglugerð um velferð dýra sem tæki gildi 2028. Hún kalli á miklar fjárfestingar sem erfitt sé að fara í þegar ekki liggur fyrir hvernig eigi að meðhöndla úrganginn.
Málið hafi komið á borð samtakanna 2020 sem þá hafi farið til umhverfisráðuneytisins og óskað eftir svörum. Það hafi líka verið á borði atvinnuvegaráðuneytisins og einnig hjá Umhverfis- og orkustofnun og heilbrigðiseftirlitum. Það hafi líka tafist þegar nýir starfsmenn komu að því, starfshópur hafi verið skipaður en formaður hans farið til annarra starfa og á meðan hafi starfið legið niðri. „Þannig að lausnir sem við höfum verið að óska eftir allan þennan tíma eru ekki enn fram komnar og málið er í töluverðum hnút,“ sagði hún. Eftirlit sé af hinu góða en kröfurnar þurfi að vera í samræmi við ávinninginn og ekki eigi að ganga lengra en þekkist í nágrannalöndum okkar til að passa upp á samkeppnishæfni greinarinnar.
Setja nógu mikið af reglum til að koma í veg fyrir annað hrun
Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, telur að mikill vöxtur regluverks hér á landi eigi rætur sínar í hruninu og trausti til traust sem þá hafi glatast í garð atvinnulífsins. Til þess að koma í veg fyrir annað hrun hafi verið litið svo á að það þyrfti bara að setja nógu mikið af reglum sem endar með því að ekki verði hægt að gera nokkurn skapaðan hlut.
„Ég held að við þurfum að staldra hér aðeins við og horfa á hvernig við getum endurreist traust í samfélaginu, traust gagnvart atvinnulífinu.“ Þetta vantraust sé mjög óheilbrigt. Þorri atvinnurekenda starfi af heiðarleika þótt auðvitað séu alltaf einhver dæmi um fólk sem brýtur lög, hvort sem það er í atvinnulífinu eða samfélaginu almennt. Ná þurfi afbrotamönnum en það megi ekki sliga þá sem reyna að starfa af heiðarleika og samviskusemi með sífellt þyngra og þyngra regluverki.
Virðingarleysi fyrir tímamörkum
Þorsteinn er líka forstjóri eignarhaldsfélagsins Hornsteins sem á BM Vallá og Björgun-Sement. Hann segir fjölmörg dæmi um að þungt regluverk og alls kyns flækjur hafi haft áhrif á rekstur þessara félaga. Undanfarin sex ár hafi verið unnið að flutningi á starfsemi BM Vallár. Skipulagsferlar, leyfisveitingar, ófyrirsjáanleiki, virðingarleysi fyrir tímamörkum og þannig mætti lengi telja, hefðu gert það verk mun tímafrekara og kostnaðarsamara en nauðsynlegt hefði verið. Það sama eigi við um leyfisveitingar í einstökum þáttum starfseminnar. „Þar sem við fáum ekki svör árum saman hjá þar til bærum eftirlitsstofnunum, stöðugur eftirrekstur og kostnaður,“ segir hann. Ekki sé verið að biðja um neitt annað en að lögum og reglum sé framfylgt, leiðbeiningarskyldu stjórnvalds sé sinnt og að fyrirtækið fái svör.
