Verða ákærðir fyrir að bera leikfangabyssur á bæjarhátíð

Fimm menn verða ákærðir fyrir að brjóta vopnalög með því að beina leikfangabyssum út um glugga á bíl um verslunarmannahelgi á Akureyri. Þeir neituðu að greiða sekt og viðurkenna brot á vopnalögum.

Lögregla var ræst út með hraði á miðri bæjarhátíðinni Ein með öllu á Akureyri. Hún fékk aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra í stórri lögregluaðgerð, þar sem fimm menn voru handteknir. Þeir voru sagðir ógna vegfarendum með skotvopni.

Fljótt kom í ljós að vopnið reyndist leikfangabyssa úr plasti úr versluninni Kids coolshop – sem vegfarendum virtist, að sögn lögreglu, raunveruleg úr fjarska. Mennirnir voru í haldi lögreglu um tíma, teknar af þeim skýrslur og málið sent til rannsóknar.

Meira en hálfur sólarhringur leið frá því að mennirnir voru handteknir þar til lögregla greindi frá því að þeir hefðu ekki verið með alvöru byssur. Mennirnir eru um tvítugt, búa á Íslandi en eru af erlendum uppruna. Þeir voru grunaðir um brot á vopnalögum, þar er klausa um eftirlíkingar af vopnum, sem lögregla telur leikfangabyssurnar geta fallið undir.

Vildu ekki játa sök með greiðslu sektar

Að lokinni rannsókn sagði Eyþór Þorbergsson, saksóknari hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, að mönnunum hefði verið send sektargerð – sem þýðir að þeim var boðið að greiða sekt og viðurkenna sök. Málið hefði farið á sakaskrá þeirra. Þetta féllust þeir ekki á og lögmaður þeirra staðfesti það í samtali við fréttastofu. Saksóknari segir þá verða ákærða en gat ekki svarað því hvenær það yrði.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.