Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum

Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði í tilkynningu frá skólanum í gær að nauðsynlegt væri að leiðrétta fjármögnun skólans en núverandi áætlanir gera ráð fyrir tuttugu og fimm prósenta skerðingu. Háskólarnir fá úthlutað fé í gegnum reiknilíkan sem er breytilegt milli ára.

Logi Már Einarsson er menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra. Hann segir virkt samtal í gangi við rektora allra háskóla landsins:

„Við erum líka meðvituð um það að þetta reiknilíkan er eitthvað sem er ekki hoggið í stein og ekki náttúrulögmál heldur er mannanna verk. Við heyrum sjónarmið rektoranna og munum reyna að bæta það. Markmið okkar er að þessi skólar séu sem sterkastir allir.“

Hann er bjartsýnn á að góð niðurstaða fáist í málið, áður en fjárlög verði afgreidd.

„Já, eins og ég segi, við erum í samtali við rektorinn og verðum það eins og við marga aðra rektora á næstu dögum. Við skulum bara sjá hvernig því lýkur.“

Ragnheiður Inga, rektor LBHÍ, staðfesti í samtali við fréttastofu að gott samtal væri milli sín og ráðherra og að hún væri bjartsýn á framhaldið.

Ekki verið að skerða með handafli

Logi segir að ekki sé niðurskurður fyrirhugaður en reiknilíkanið sé breytilegt og upphæðir sem deilast út á skólana séu breytilegar milli ára. Ef einhver fær meira fær annar minna:

„Nei nei, alls ekki. Þetta er bara ákveðin upphæð sem að deilist á milli þessara sex skóla eftir ákveðnum leikreglum sem má finna í þessu reiknilíkani. Það er ekki verið að skerða eitt eða neitt með handafli. Þegar einn fær minna fær annar meira samkvæmt þessu reiknilíkani.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.