Dagur gegn einelti var haldinn hátíðlegur í Hlíðaskóla. Halla Tómasdóttir forseti Íslands veitti Fjölbrautaskóla Suðurlands hvatningarverðlaun fyrir forvarnir gegni einelti, Kærleikslag var samið í tilefni dagsins og nemendur í Hlíðaskóla lögðu söngkonunni Gísellu Hannesdóttur lið við flutninginn.
Frosti Þorvaldsson nemandi í 9. bekk í Hlíðaskóla flutti ávarp og segir að það skipti miklu máli þegar taka þarf á erfiðum málum, eins og einelti, að fullorðnir sýni börnum og unglingum virðingu.
Kenna manni og æsa sig ekki
„Skamma ekki. Og tala við mann í rólegheitum. Kenna manni og æsa sig ekki. Þá hlusta unglingar miklu meira og taka það miklu meira til sín. Í staðinn fyrir þegar þeir eru skammaðir.“
Finnst unglingum þeir stundum of mikið skammaðir?
„Já, en þeir eiga það líka kannski stundum skilið. En mér finnst alltaf betra að ræða málin og útskýra hvað maður er að gera vitlaust. Og kenna manni bara.“
Margir fara leiðir í skólann
Frosti segist hafa orðið var við einelti í sínum skóla. „Maður gæti gert betur í að hjálpa og tala við þá en ég hef ekki gert það. Og ég sé eftir því. Maður þarf að gera það miklu meira.“
Og að mati Frosta skiptir máli að vekja reglulega athygli á skaðsemi eineltis og hvernig hægt sé að koma í veg fyrir það.
„Það eru margir sem fara í skólann leiðir og vilja ekki mæta út af því að þeir eru lagðir í einelti. Og það er alls ekki gott. Við þurfum að laga það, þar sem allir eru glaðir.“
