Sagan um læknishúsið í Laugarási sem ríkið ætlar nú að selja á opnum markaði

Íslenska ríkið mun ekki selja læknishúsið í Laugarási í Bláskógabyggð beinni sölu til yfirlæknis heilsugæslunnar á Flúðum í Hrunamannahreppi, líkt og til stóð. Tillaga að slíkri sölu var í fjáraukalögum fyrir þetta ár. Þessi heimild er hins vegar ekki í fjárlögum næsta árs heldur aðeins heimild til ríkisins að selja húsið í opnu söluferli. Yfirlæknirinn var áður starfandi á heilsugæslunni í Laugarási sem var flutt á Flúðir í fyrra.

Í svari frá heilbrigðisráðuneytinu við fyrirspurn um fréttastofu um málið kemur fram að ráðuneytið hafi óskað eftir því við fjármála- og efnahagsráðuneytið í fyrra að læknirinn fengi forkaupsrétt að húsinu við sölu þess. Orðrétt segir í svarinu frá ráðuneytinu: „Heilbrigðisráðuneytið hefur ekki átt aðra aðkomu að þessu máli en að óska eftir við fjármála- og efnahagsráðuneytið heimild inn í fjárlagafrumvarpið 2026 eins og hún er orðuð hér að ofan, þ.e. forkaupsrétti fyrir yfirlækni HSU. Það liggur fyrir að ekki hefur orðið af sölunni og í 6. gr. fjárlagafrumvarpi ársins 2027 kemur fram óskilyrt heimild fyrir sölu læknisbústaðarins. Sala eignarinnar er ekki á forræði heilbrigðisráðuneytisins.“

Fjallað var um hina fyrirhuguðu sölu hússins í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í vikunni. Sveitarstjórinn í Bláskógabyggð, Ásta Stefánsdóttir, sagði í þættinum að það væri óvenjulegt fyrirkomulag að ætla að selja ríkiseign beint til einstaklings með þessum hætti.  „Ég man bara ekki til þess á síðustu árum að ríkið hafi verið að selja eignir án auglýsingar. Ég hef ekki heyrt af svona máli í einhverja áratugi. Þetta getur kannski hafa tíðkast hér áður fyrr. Þegar það var verið að flytja heilsugæsluna úr Laugarási á Flúðir, sem er nú ekki mjög langt síðan, þá voru þar færð ýmis rök fyrir því að sá flutningur væri nauðsynlegur. Þar á meðal að það væri nú meira framboð á íbúðarhúsnæði á Flúðum fyrir starfsmenn og fyrir lækna. Það að tengja söluna á þessari eign við yfirlækni á heilsugæslu sem er ekki lengur á staðnum er svolítið sérstakt,“ sagði Ásta og lýsti þarna umræðu um málið sem upp kom í sveitarfélaginu og fréttastofa hefur haft spurnir af hjá fleiri íbúum.

Þáttinn má hlusta á hér en þar kom meðal annars fram að fyrirhuguð sala hússins hefði vakið athygli hjá heilbrigðisstarfsfólki á Suðurlandi.Íslenska ríkið hætti við að selja læknishúsið í Laugarási beint til yfirlæknis. Ósk heilbrigðisráðuneytisins um söluferli hússins skolaðist til í kerfinu. Beiðni um forkaupsrétt varð að beinni sölu í fjáraukalögum.

Ósk ráðuneytisins virðist hafa skolast til

Svo virðist sem textinn í fjáraukalögunum þar sem rætt var um sölu læknishússins hafi verið annar en í bréfi heilbrigðisráðuneytisins sem nefnt var hér að framan. Heilbrigðisráðuneytið óskaði eftir því að yfirlæknirinn fengi „forkaupsrétt“ að húsinu en í fjáraukalögunum varð tillagan að „beinum samningi“ við yfirlækninn.

Í fjáraukalögunum sagði um málið. „Heilbrigðisráðuneytið hefur óskað eftir að gengið verði til beinna samninga um sölu á 370 fermetra einbýlishúsi í Laugarási í eigu ríkisins til yfirlæknis heilsugæslunnar sem hefur verið með húsið á leigu um árabil vegna starfa sinna hjá heilbrigðisstofnuninni. […] Ljóst er að um sérstakt tilvik er að ræða sem snýr að lausn á húsnæðisvanda lykilstarfsmanns í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Af þeim sökum er talið réttlætanlegt að óska eftir beinni söluheimild í þessu tilviki… “

Hvernig þessi breyting varð á fyrirætlunum ríkisins um læknishúsið í meðförum ráðuneytanna tveggja liggur ekki fyrir.

Málið endar með öðrum hætti

Í fjárlögum næsta árs er hvorki talað um forkaupsrétt eða beinan samning við yfirlækninn um kaupin á þessu húsi heldur aðeins opna sölu.

Þetta mál, sem vakti talsverða athygli í sveitarfélaginu, endar því með öðrum hætti en á horfði. Það endar alls ekki með því að ríkið hverfi frá þeirri vinnureglu að auglýsa ríkiseign í opnu söluferli og selja hana beint til tiltekins einstaklings. Læknirinn sagði líka við fréttastofu í vikunni að Framkvæmdasýsla ríkisins hefði tjáð henni að ekki stæði til að selja henni húsið.

Í umfjöllun DV um málið, sem birt var eftir að fréttastofa fjallaði um það á þriðjudaginn var, kom fram að yfirlæknirinn hefði gert kauptilboð með fyrirvörum í húsið nú í haust. Þetta kauptilboð rann út án þess að samningar hafi náðst.

Svar heilbrigðisráðuneytisins í heild sinni

Heilbrigðisráðuneytið sendi fréttastofu ítarlegt svar um þetta mál sem birt er hér í heild sinni. Í svarinu er aðdragandi og aðkomu ráðuneytisins að því rakin.

„Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) hefur um árabil leigt íbúðarhúsið að Launrétt 6 fyrir lækna heilsugæslunnar í uppsveitum, sem nýverið flutti frá Laugarási að Flúðum. Í nóvember 2024 óskaði forstjóri HSU eftir heimild heilbrigðisráðuneytisins fyrir yfirlækni heilsugæslunnar til að semja við Framkvæmdasýslu ríkiseigna (FSRE) um kaup á húsinu, þar sem hann hafði búið með fjölskyldu sinni um skeið.

HSU taldi það þjóna almannahagsmunum að læknir hefði fasta búsetu í héraðinu, sem ekki hefði verið raunin um árabil, og stuðla þannig að samfellu í læknisþjónustu. Húsnæðisframboð væri mjög takmarkað og áframhaldandi starf yfirlæknisins háð húsnæði og mikilvægri þjónustu, svo sem leikskólaplássi. Ráðuneytið synjaði beiðninni 21. nóvember 2024 og sambærilegu erindi 7. mars 2025 með vísan til jafnræðis- og gagnsæisreglna laga um opinber fjármál og opinber innkaup.

Í október 2025 tilkynnti FSRE HSU að samhliða flutningi heilsugæslunnar væri breytt notkun húsnæðisins í Laugarási til skoðunar og fyrirhugað að selja læknisbústaðinn. Húsið þarfnaðist verulegra viðgerða sem FSRE teldi ekki forsvaranlegar í ljósi ástands þess og stefnu stjórnvalda um sölu íbúðarhúsnæðis í eigu ríkisins.

HSU sendi þá nýtt erindi til ráðuneytisins. Yfirlæknirinn hefði ekki fundið viðunandi húsnæði á svæðinu og óskaði eftir að kaupa Launrétt 6 í núverandi ástandi og annast sjálfur nauðsynlegar viðgerðir. Beiðnin byggðist á sömu rökum og áður: að tryggja læknisþjónustu á svæðinu með varanlegri búsetu yfirlæknisins, sem hefði fjölskyldutengsl við Laugarás.

Í ljósi þessa endurskoðaði heilbrigðisráðuneytið fyrri afstöðu sína og óskaði eftir undanþáguheimild fjármála- og efnahagsráðuneytisins til að veita forkaupsrétt að eigninni með svohljóðandi erindi, dags. 31. október 2025:

„Heilbrigðisráðuneytið óskar hér með eftir við fjármála- og efnahagsráðuneytið að sett verði sérstök heimild í 6. gr. fjárlaga til að heimila forkaupsrétt að fasteigninni að Launrétti 2 í Laugarási fyrir yfirlækni heilsugæslunnar í uppsveitum Suðurlands.

Málið varðar húsnæði sem Framkvæmdasýsla ríkiseigna (FSRE) hefur leigt Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) og nýtt hefur verið sem búsetuhúsnæði yfirlæknis. Í kjölfar leka og myglu hefur húsið orðið óíbúðarhæft og FSRE tilkynnt um fyrirætlanir um að selja eignina í núverandi ástandi eða ráðast í mjög kostnaðarsamar viðgerðir sem myndu leiða til verulegrar hækkunar á leigu.

Yfirlæknirinn gegnir lykilhlutverki í að tryggja samfellu og öryggi læknisþjónustu í uppsveitum Suðurlands þar sem erfitt hefur reynst að manna stöður til lengri tíma. Hún hefur jafnframt fjölskyldutengsl við svæðið og hefur lýst því að hún vilji ekki flytja í annað húsnæði, t.d. á Flúðum, og er tilbúin til að kaupa húsnæðið og sjáum viðgerðirnar sjálf. Að mati forstjóra HSU myndi röskun á búsetu hennar hafa bein áhrif á stöðugleika og gæði læknisþjónustu á svæðinu. 

Ráðuneytið hefur áður fjallað um málið og hafnað forkaupsrétti með vísan til laga um opinber fjármál nr. 123/2015 og laga um opinber innkaup. Hins vegar hefur staða málsins nú breyst í ljósi þess að húsnæðið er orðið óíbúðarhæft og FSRE hefur ákveðið að selja eignina. Aðstæður teljast því óvenjulegar og tengjast beint almannahagsmunum, þar sem trygging stöðugrar læknisþjónustu í uppsveitum Suðurlands er í húfi.

Beiðni þessi byggist því á eftirfarandi meginsjónarmiðum:

  • Að tryggja samfellu í læknisþjónustu á svæði þar sem skortur á læknum hefur lengi verið viðvarandi vandamál.
  • Að koma í veg fyrir að yfirlæknir, sem gegnir lykilhlutverki í þjónustunni, neyðist til að flytja af svæðinu vegna óleysts húsnæðisvanda.
  • Að ríkissjóður þurfi ekki að bera kostnað af viðgerðum eða auknum húsnæðisútgjöldum sem annars myndu fylgja viðhaldi eða endurleigu.
  • Að veiting forkaupsréttar í þessu tilviki verði bundin við sérstakt samþykki Alþingis samkvæmt 6. gr. fjárlaga og skapi því ekki fordæmi fyrir önnur mál af sambærilegum toga.

Heilbrigðisráðuneytið leggur áherslu á að um sé að ræða einstakt tilvik sem snýr að varanlegri lausn á brýnum húsnæðisvanda lykilstarfsmanns í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Með slíkri heimild væri unnt að tryggja samfellu í þjónustu og forðast aðra, fjárhagslega þyngri kosti, s.s. viðgerðir á húsnæðinu eða kaup og leigu nýrrar fasteignar.

Ráðuneytið óskar því eftir að fjármála- og efnahagsráðuneytið samþykki að í frumvarp til fjárlaga verði sett sértæk heimild í 6. gr. um að heimila forkaupsrétt að fasteigninni að Launrétti 2 í Laugarási fyrir yfirlækni HSU í uppsveitum Suðurlands.

f.h. heilbrigðisráðherra““


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.