Vegagerðin hefur auglýst framkvæmdir á rampi frá Bústaðavegi niður á Kringlumýrarbraut í norðurátt frá klukkan 11 til 15 og varar við umferðartöfum.
Miklar umferðartafir voru á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær þegar rampur frá Bústaðavegi niður á Hafnarfjarðarveg var lokaður til klukkan 17 vegna framkvæmda.
Árni Friðleifsson hjá umferðardeild lögreglunnar sagði í Síðdegisútvarpinu að biðlað hefði verið til Vegagerðarinnar að hafa framkvæmdirnar á nóttunni til að koma í veg fyrir þetta.
„Það er nú raunverulega varla nógu hlýtt yfir daginn til þess að sinna þessum störfum þannig það er alltof kalt á nóttunni það er ekki hægt, því miður,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.
„En þarna urðu töluvert miklu meiri umferðartafir heldur en við höfðum ætlað þannig ég held að við verðum nú að skoða hvort þetta sé verklag sem við getum eitthvað nýtt. Við viljum auðvitað helst vinna þetta á sumrin þegar umferðin er sem minnst.“
Hann býst ekki við jafnmiklum umferðartöfum í dag.
„Nei, við reiknum nú alls ekki með eins miklum töfum. Bæði eru þetta bara viðgerðir, ekki eins stór framkvæmd og í gær og miklu styttri tími. Þarna á þessum stað, þetta er rampurinn sem er með minnsta umferð, þannig við eigum nú ekki von á neinu viðlíka og í gær.“
Það verða líka framkvæmdir á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegs í suðurátt milli 11 og 15 og beygjuakreinum fækkað í eina á meðan.
