Frumvarp sem Sigurður Ingi Jóhannsson lagði fram á lokametrum síðasta kjörtímabils lagði grunninn að því fyrirkomulagi hvernig stjórn Landsvirkjunar var skipuð. Sjálfur segir Sigurður Ingi að embættismenn hafi laumað breytingunum framhjá pólitíkinni en þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir þingmanninn kasta starfsmönnum heils ráðuneytis undir rútuna til að fegra eigin hlut.
Fjallað er um breytingarnar í fréttaskýringu Gímaldsins í morgun. Áður fyrr tilnefndu stjórnmálaflokkarnir fulltrúa í stjórn Landsvirkjunar en því var breytt fyrir tveimur árum þannig að nú fær ráðherra tilnefningar frá valnefnd. Þessi breyting var færð í lög í október 2024 en það frumvarp sneri fyrst og fremst að niðurlagningu Bankasýslu ríkisins.
Sigurður Ingi var þá fjármálaráðherra, og raunar innviðaráðherra líka, í starfsstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks eftir að VG hafði gengið úr skaftinu og boðað hafði verið til kosninga í lok nóvember.
Í viðtali við Gímaldið segir Sigurður Ingi að breytingar er lúta að skipan í stjórnir Landsvirkjunar og annarra stórra ríkisfyrirtækja hafi farið framhjá honum, þótt hann hafi sjálfur lagt frumvarpið fram.
„Þetta er áhugamál einhverra embættismanna í ráðuneytinu og þessu var bara laumað fram hjá.“
Markmið laganna hafi verið að leggja niður Bankasýsluna en líklega hafi þetta farið framhjá fólki vegna þess að þingmenn voru staddir í miðri kosningabaráttu. Frumvarpið var samþykkt á lokametrum þingsins og var umræða um frumvarpið í skötulíki.
„Og þarna er bara hent inn, eins og gert er í bandormi, breytingum á allt öðrum lögum, eða lögum um opinber fjármál. Þetta fór fram hjá mér og fram hjá þinginu.“
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, gerði málið að umræðuefni við upphaf þingfundar í dag. Hann vitnaði beint í flutningsræðu Sigurðar Inga frá þeim tíma þar sem sagði:
„Í frumvarpinu er lagt til að viðhalda því fyrirkomulagi að sérstök valnefnd leggi fram tillögur um einstaklinga í stjórnir þeirra fjármálafyrirtækja sem eru í eigu ríkisins. Þetta fyrirkomulag hefur almennt reynst vel og því er lagt til að viðhalda því með þeim hætti að það gildi ekki aðeins fyrir fjármálafyrirtæki í ríkiseigu heldur einnig fyrir önnur stærri ríkisfyrirtæki.“
Bætir Guðmundur Ari því við að í frumvarpinu sé sérstaklega talað um Landsvirkjun þegar vísað er í stærri ríkisfyrirtæki.
Var með galopin augu
Guðmundur Ari sagði að Sigurður Ingi hefði gengið langt í að gagnrýna ríkisstjórnina fyrir nýtt fyrirkomulag á vali í stjórnir ríkisfyrirtækja. Fyrirkomulag sem hann beri sjálfur fulla ábyrgð á en reyni svo að koma sér undan ábyrgð þegar blaðamenn ganga á hann.
„Þegar flett er upp í gögnum Alþingis kemur alveg skýrt fram að háttvirtur þingmaður lagði fram þessa breytingu með galopin augun, mælti fyrir henni og samþykkti hana ásamt öðrum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Við hljótum að gera þá kröfu í störfum þingsins að þingmenn fari með rétt mál, beri ábyrgð á eigin ákvörðunum og reyni ekki að kasta starfsfólki heils ráðuneytis undir rútuna í fjölmiðlaviðtölum til að fegra eigin hlut.“
Þess má raunar geta að þingmenn Flokks fólksins og VG greiddu einnig atkvæði með frumvarpinu.
Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokks, kom samflokksmanni sínum til varnar. Gagnrýndi hún Guðmund Ara fyrir að vega að fjarstöddum þingmanni, en Sigurður Ingi er staddur í Japan ásamt gervallri utanríkismálanefnd. Sagði Ingibjörg ummælin bera þess merki að rök meirihlutans í Landsvirkjunarmálinu séu á þrotum. „ Það er fullkomlega eðlilegt að tekist sé á um málefni Landsvirkjunar en persónulegar aðdróttanir koma ekki í stað þess að svara og gera þörfina fyrir skýringar engu minni. Höldum okkur við málefnin og sýnum hvoru öðru þann sóma að vaða ekki í manninn.“
Fréttin var uppfærð með viðbrögðum Ingibjargar.
