Skjálfti af stærðinni 4,5 í Bárðarbungu

Stór skjálfti reið yfir í Bárðarbungu klukkan 13:37 í dag. Hann var af stærðinni 4,5 og engir eftirskjálftar hafa fylgt þegar þetta er skrifað. Þá hafa engar tilkynningar borist við Veðurstofu Íslands um að skjálftinn hafi fundist í byggð.

Skjálftar af þessari stærð eru algengir á þessum slóðum og tengjast kvikusöfnun í Bárðarbungu eftir Holuhraunsgosið 2014-2015. Engin merki eru um gosóróa.

Síðast varð skjálfti af þessari stærðargráðu í Bárðarbungu þann 19. október. Hann mældist 5,2 að stærð, en þar áður varð skjálfti af stærð 4,7 þann 5. október.Google Imagery


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.