Staðan í birgðageymum hitaveitunnar á Akureyri er fyrir neðan öryggismörk og hefur verið frá því í gærkvöldi. Notkun á heitu vatni hefur aukist umfram framleiðslu vegna kuldakasts síðustu daga. Neyðarstjórn Norðurorku er í viðbragðsstöðu.
„Unnið hefur verið að því í dag að bæta stöðuna og heldur sú vinna áfram eins lengi og þarf. Staðan er viðkvæm og lítið má út af bregða,“ segir í tilkynningu á vef Norðurorku.
Unnið er að því að koma olíukatli við Mímisbraut í gagnið. Hann er nýttur í neyð. Ketillinn hitar upp bakrásarvatn og skilar því heitu inn á geymana. Til að lágmarka olíunotkun verður reynt að hafa hann í gangi sem skemmst.
Fólk beðið að passa upp á heitavatnsnotkun
Stórnotendur eru beðnir um að draga úr notkun á heitu vatni eins og kostur er. Skrúfað hefur verið fyrir upphitun íþróttavalla í bænum, til dæmis.
Fólk er beðið um að huga vel að nýtingu á heitu vatni á heimilum og vinnustöðum.
„Góð ráð eru að loka gluggum, draga úr innspýtingu í snjóbræðslukerfi eins og hægt er og stilla ofnakerfi á þann hátt að nýting sé sem best. Auk þess eru þeir notendur sem hafa heita potta beðnir um að láta ekki renna í þá,“ segir í tilkynningu.
