Björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út rétt fyrir klukkan fjögur til að aðstoða slasaðan vélsleðamann á Langjökli nærri Hvítárvatni. Vísir.is greindi fyrst frá.
Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrluna hafa tekið á loft klukkan 16:00 og að hún hafi lent á Langjökli um hálftíma síðar.
Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að björgunarsveitir séu á leiðinni og að þær séu á jökuljaðrinum sem stendur.
Ekki er vitað hvernig slysið varð eða hver líðan mannsins er að svo stöddu.
