„Þegar hundruð og jafnvel milljónir undirskrifta safnast þá er erfitt fyrir stjórnvöld að líta undan“

Opnunarhátíð alþjóðlegrar herferðar Amnesty International fór fram í Hörpu undir yfirskriftinni: Þitt nafn bjargar lífi. Herferðin fagnar 25 ára afmæli og viðburðir verða víða um land næstu vikur.Þitt nafn bjargar lífi er nafn alþjóðlegrar herferðar Amnesty International. Aðalframkvæmdastjóri samtakanna segir Íslendinga geta sett veigamikið fordæmi þegar kemur að mannréttindum.

Agnès Callamand, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International, er einn af heiðursgestum hátíðarinnar. Hún hefur um árabil fjallað um alvarleg mannréttindabrot víða um heim og var sérstakur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna um aftökur án dóms og laga.

Hún segir að þó að Íslendingar séu fáir geti þeir sett veigamikið fordæmi þegar kemur að því að standa með mannréttindum.

„Við lifum á tímum þar sem ákveðinn hópur mjög valdamikilla manna, sem ég kalla rándýr, Donald Trump, Benjamin Netanyahu, Vladimir Putin, Xi, að ógleymdu fólkinu í stóru tæknifyrirtækjunum, vinnur saman að því að snúa við þeim framförum sem við höfum náð undanfarin áttatíu ár. Það ræðst á alþjóðakerfið, múrstein fyrir múrstein.“

Gult hjarta tákn herferðarinnar

Í ár beinist herferðin að málum einstaklinga sem sæta alvarlegum mannréttindabrotum víða um heim. Gult hjarta er tákn herferðarinnar og á að endurspegla þann kraft sem býr í samstöðu fólks. Slíku hjarta var varpað á framhlið Hörpu í tilefni hátíðarinnar.

Bryndís Bjarnadóttir, herferðarstjóri Íslandsdeildar Amnesty International, segir hverja undirskrift skipta máli.

„Fólk spyr okkur einmitt oft: Hefur þetta eitthvað að segja að setja nafn sitt á bréf til stjórnvalda? Meinið er að þegar hundruð og jafnvel milljónir undirskrifta safnast eins og í þessari herferð þá er erfitt fyrir stjórnvöld að líta undan,“ segir Bryndís.