Vill breyta umferðarlögum til að sporna við hraðakstri

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er í dag. Tólf hafa látið lífið í umferðarslysum það sem af er ári. Minningarathafnir voru haldnar víða um land í tilefni dagsins. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vill breyta umferðarlögum til að sporna við hraðakstri. Hann ávarpaði viðstadda við minningarathöfn í Fossvogi.

Aukin fræðsla í framhaldsskólum og breytingar á umferðarlögum

„Eins og ég greindi frá í tölu minni þá er rannsóknarnefnd samgönguslysa að fara í framhaldsskóla í fræðsluátak og Samgöngustofa líka og þar er markmiðið að ná til ungra ökumanna,“ segir Eyjólfur.

Þá verða veigamiklar breytingar á umferðarlögum kynntar í samráðsgátt stjórnvalda á næstu dögum.

„Þar sem ætlunin er að ná frekar utan um þennan málaflokk, bæði götukappakstur, hættulega hegðun í umferðinni of hraðan akstur, og styrkja alla lagaumgjörð í kringum það,“ segir Eyjólfur.

„Verðum að minna okkur á að við berum öll ábyrgð“

Í athöfninni var þeim sem veita hjálp og björgun þakkað. Halla Tómasdóttir forseti Íslands stýrði mínútu þögn og flutti ávarp.

„Við verðum að bæði minnast þeirra sem við höfum misst en líka minna okkur á að við berum öll ábyrgð. Það þarf heilt samfélag til þess að umferðarmenningin verði hér þannig að slysum fækki og færri þurfi að hverfa á braut á ótímabæran máta,“ segir Halla.

Hún sagði daginn sérstaklega þýðingarmikinn í ár í ljósi skelfilegra slysa á árinu vegna hraðaksturs, þar sem ungmenni týndu lífi. Þrátt fyrir að alvarlegum slysum ungra ökumanna hafi fækkað síðustu áratugi eru blikur á lofti.

Hraðakstur og áhættuhegðun ungmenna hefur aukist og ný tískubylgja á samfélagsmiðlum, þar sem ungmenni aka á ógnarhraða og taka það upp, er alvarleg þróun.

„Ég segi við unga fólkið: Það er enginn hraði, ekkert læk, enginn fjöldi fylgjenda, ekkert sem réttlætir að við tökum gáleysilegar ákvarðanir sem geta kostað einhvern lífið, okkur sjálf eða aðra,“ segir Halla.