„Við erum hérna að bregðast við ákallinu og orðræðunni um að við hefðum getað gert betur að eiga samtal við íbúa erum hér í dag að taka fyrsta skrefið í því – eiga samtalið og hlusta,“ segir Ólöf Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og stoðsviða Kaldvíkur.
Laxeldið er hitamál á Seyðisfirði og hefur verið mótmælt þar, síðast í dag þegar mótmælaspjöld voru hengd fyrir utan félagsheimilið þar sem fundur Kaldvíkur var haldinn.
„Við erum ekki hér til að sannfæra fólk. bara eiga samtöl og búa til tækifæri til að fólk geti átt líka erfið og flókin samtöl,“ segir Ólöf Helga.
Þeir íbúar sem fréttastofa hitti á fundinum voru samt sem áður jákvæðir.
„Ég held þetta yrði lyftistöng fyrir samfélagið okkar, sérstaklega eftir að við misstum kvótann og bræðslan lokaði síðasta haust. Þannig ég held það yrði lyftistöng að fá atvinnu hér til baka,“ segir Örn Jónsson, Seyðfirðingur
„Það vantar atvinnu hérna, heilsársstörf, ég á fjölskyldu og mig lagnar að búa hérna og vera hérna,“ segir Aníta Grétarsdóttir, Seyðfirðingur.
Er fólk bara áhugasamt sem hefur komið hér?
„Bæði mjög áhugasamt og margir forvitnir, svo eru einhverjir sem eru það alls ekki en hafa samt komið og kynnt sér eitthvað, það er bara frábært,“ segir Ólöf Helga.
