Vill koma í veg fyrir að brotamenn geti falið fortíð sína með nafnbreytingu

Heimilt verður að neita mönnum um nafnbreytingu hafi þeir brotið alvarlega af sér og hlotið fyrir það óskilorðsbundinn refsidóm, ef frumvarp Sigurðar Helga Pálmasonar þingmanns Flokks fólksins nær fram að ganga. Kastljós ræddi við Sigurð í gegnum fjarfundarbúnað en hann er staddur í Japan.Þingmaður Flokks fólksins leggur í næstu viku fram frumvarp sem gefur stjórnvöldum heimild til að neita brotamönnum um nafnbreytingu.

„Hagsmunir þeirra sem hafa brotið alvarlega af sér eiga ekki að vega þyngra en hagsmunir saklausra borgara,“ segir Sigurður.

Hann er spurður hvers eðlis brotin þurfi að vera til að heimilt sé að synja honum um nafnbreytingu. Sigurður svarar því til að horft sé til allra alvarlegustu brotanna, meðal annars kynferðisbrota. Það sem hann hafi reynt að gera sé að finna leið til að móta frumvarpsbreytingar sem gangi ekki gegn stjórnarskrárvörðum rétti fólks. Leiðin sé að innleiða heimild en ekki bann og með því að gæta meðalhófs.

„Þetta er ekki skilyrði heldur heimild stjórnvalda.“

Í Kveiksþætti frá því á þriðjudagskvöld steig kona fram og lýsti hvernig það hefði haft gríðarleg áhrif á sig þegar maður sem hafði brotið gegn henni skipti um nafn. Vanlíðanin hefði verið slík þegar hún frétti af nafnbreytingunni að hún þurfti að leggjast inn á geðdeild.

„Það er einlæg von mín að með því að fara þessa leið getum við komið í veg fyrir svona aðstæður. Ef við náum að verja eina manneskju með þessu frumvarpi þá er tilganginum náð,“ segir Sigurður.

Þingmenn úr mörgum flokkum standa að frumvarpinu sem Sigurður bindur vonir við að geta flutt í þingsal í byrjun næstu viku. Hann kveðst ekki eiga von á mótspyrnu.

„Ég held að okkur finnist öllum svolítið skrýtið að við getum skipt um nafn ef það hentar okkur til að fela. Það er ekkert eðlilegt við það að mínu mati.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.