Fyrstu vikur vetrar hafa verið nokkuð mildar víða um land. Norðlendingar njóta góðs af tíðinni og sinna bústörfum utandyra eða spila golf í blíðunni. Jaðarsvöllur á Akureyri er enn í góðu standi þrátt fyrir að daginn sé farinn að stytta mikið. Veðurspáin er góð næstu daga og geta golfarar spilað á honum eitthvað áfram. Meðalhitinn á Akureyri í október var 4,7 stig sem er 1,2 stigum yfir meðallagi síðustu 30 ára.
Það eru ekki aðeins golfarar sem njóta góðs af mildu hausti. Haustverkin hafa ílengst verulega á Svertingsstöðum í Eyjafjarðarsveit. Þar er unnið hörðum höndum að því að binda hálm, dreifa skít á tún og hreinsa beitarhólf. Hákon Bjarki Harðarson er bóndi á Svertingsstöðum.Golfarar á Akureyri eru enn á fullu á Jaðarsvelli og bændur í Eyjafirði nýta góða tíð til að ljúka haustverkum. Hitinn í október var 1,2 stigum yfir meðalhita síðustu 30 ára.
