Samkvæmt nýjum tillögum stendur framlag háskólaráðuneytisins aðeins undir 45 af hundraði áætlaðs rekstrarkostnaðar Landbúnaðarháskóla Íslands á móti tveimur þriðju eins og verið hefur undanfarin ár.
Í tilkynningu Ragnheiðar I. Þórarinsdóttur rektors segir að nauðsynlegt sé að fjármögnun háskólans verði leiðrétt áður en fjárlög verða afgreidd, að fjárfestingar verði fjármagnaðar án skerðingar grunnrekstrar og að breytingar á reiknilíkani verði unnar í samráði við skólana með raunhæfum aðlögunartíma.
Ragnheiður segir að Landbúnaðarháskóli Íslands hafi á undanförnum árum sótt fram og styrkt stöðu sína verulega á alþjóðavettvangi. Starfsfólk skólans hafi náð mikilvægum árangri í rannsóknum, kennslu og öflun erlendra styrkja.
Traustur rekstrargrundvöllur sé forsenda þess að skólinn geti áfram aflað alþjóðlegs fjármagns og skilað árangri sem nýtist íslensku samfélagi.
Styrkir á borð við Peatland LIFEline.is séu ekki ætlaðir til grunnreksturs skólans. Það er langtímaverkefni um endurheimt votlendis og vernd líffræðilegrar fjölbreytni sem bundið er endurheimt, vöktum og öðrum skilgreindum verkefnum.
Með þátttökunni afli skólinn fjár til verkefna sem íslenska ríkið ætti að standa að. Aðrir rannsóknarstyrkir séu einnig bundnir verkefnum, til dæmis ráðningum doktorsnema. Styrkir efli fræðilega uppbyggingu en komi ekki í stað stöðugrar fjármögnunar til kennslu og almenns rekstrar.
Ragnheiður rektor segir að framlög hækki til skólans vegna kennslu og rannsókna, en hverfi með skerðingu á samfélagslega hluta árangurstengds reiknilíkans fyrir háskólana vegna breytinga á reiknireglum ráðuneytisins.
Innleiðingarframlag skólans lækkar eitt og sér um rúmlega 200 milljónir króna. Ragnheiður krefst skýringa á því af hverju Landbúnaðarháskólinn, einn háskóla, sé ekki varinn skerðingu.
„Við gerum okkur grein fyrir því að innleiðingarframlagið átti að minnka með árunum. Hraði breytinganna verður þó að gefa svigrúm til aðlögunar.“
Ragnheiður segir að fyrirhugaðar breytingar á reiknilíkani ráðuneytisins hafi verið kynntar fulltrúum háskólanna á fundi 19. október, án undangengins samráðs sem gæfi skólanum raunhæft færi á að bregðast við. Óskað hafi verið eftir útreikningum fyrir háskólana samkvæmt gildandi reglugerð og skýringum á forsendum breytinganna.
Landbúnaðarháskólinn hafi sömuleiðis beðið um skýringar á því hvaða heimildir ráðuneytið hefði til að færa 200 milljónir króna af rekstrarframlagi hans yfir í fjárfestingu í Jarðræktarmiðstöð.
Skólinn hafi gefið sér þær forsendur að fé yrði tryggt til Jarðræktarmiðstöðvar, rannsóknagróðurhúss og kaupa á Mið-Fossum, samhliða flutningi tilraunastarfseminnar að Hvanneyri.
„Sú uppbygging má ekki ganga á grunnrekstur skólans. Við höfum lagt til að ráðuneytið kanni hvort þessar 200 milljónir geti komið af óráðstöfuðu fé þess á árinu 2026.“
Rektor segir að til viðbótar hafi öllu fjárfestingarframlagi skólans verið ráðstafað til Jarðræktarmiðstöðvar.
Fjármagn skorti til reglubundinnar endurnýjunar tækjabúnaðar og annarra nauðsynlegra fjárfestinga auk þess sem taka þurfi tillit til húsnæðiskostnaðar skólans, meðal annars vegna umsjónar með friðuðum byggingum á Hvanneyri.
Því fylgi kostnaður sem ekki sé reiknaður sérstaklega inn í framlag ráðuneytisisins. Þótt háskólaráðuneytið hafi sagt athugasemdir Landbúnaðarháskólans til skoðunar liggi efnisleg svör ekki enn þá fyrir.
