Handtekinn á Íslandi eftir 19 ára flótta undan lögunum

Erlendur karlmaður situr í gæsluvarðhaldi á Íslandi vegna nauðgunar sem hann er grunaður um að hafa framið á Írlandi árið 2004.

Maðurinn var handtekinn á Íslandi á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar frá írskum yfirvöldum sem var gefin út í september 2014. Ætluð brot gætu varðað ævilöngu fangelsi þar í landi.

Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur kemur ekki fram hvert ríkisfang mannsins er. Hann mun hafa dvalið hérlendis frá árinu 2017.

Flúði Írland og notaði falsað vegabréf

Manninum er gefið að sök að hafa nauðgað konu og beitt hana ofbeldi á Írlandi í maí 2004. Hann yfirgaf Írland skömmu eftir að hann losnaði úr haldi lögreglu það ár.

Árið 2007 var hann handtekinn aftur og ákærður. Hann gekk laus gegn tryggingu og því að hann afhenti ferðaskilríki sín. Maðurinn lét sig samt sem áður hverfa. Tilraunir írskra yfirvalda til að hafa uppi á honum báru ekki árangur.

Maðurinn skipti um nafn árið 2012 og notaðist íslensk lögregla meðal annars við andlitssamanburðarskýrslu og fingraför til að staðfesta að hann væri sá sami og var eftirlýstur árið 2007.

Á Íslandi hefur hann notast við falsað vegabréf. Á grundvelli þess hefur hann um árabil dvalið og starfað sem EES-borgari án þess að eiga tilkall til þeirrar réttarstöðu.

„Notkun hans á fölsuðu vegabréfi og flótti frá málsmeðferð á Írlandi, styrkir að mati ríkissaksóknara hættuna á að hann leynist eða komi sér með öðrum hætti undan meðferð málsins,“ segir í úrskurði héraðsdóms.

Lítil persónuleg tengsl við Ísland

Maðurinn var tekinn til skýrslutöku hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu nýlega. Hann kvaðst ekki kannast við írska sakamálið og neitar sakargiftum. Hann mótmælir afhendingu sinni til Írlands.

Maðurinn á ekki fjölskyldu á Íslandi og hefur lítil persónuleg tengsl við landið þrátt fyrir að hafa dvalið hér um árabil.

Á grundvelli þessa og þess að maðurinn hafnaði afhendingu til Írlands féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á að gæsluvarðhald væri nauðsynlegt þar til búið væri að leysa úr máli hans. Landsréttur staðfesti þennan úrskurð.

Maðurinn sætir gæsluvarðhaldi til 1. desember næstkomandi.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.