Greint var frá því í síðustu viku að fjölskyldan sem á Fjarðarkaup hefði samþykkt að selja dótturfélagi Dranga verslunina. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Fjarðarkaup hafa verið í eigu sömu fjölskyldunnar í meira en hálfa öld.
Rætt var við Gísla Þór Sigurbergsson, eiganda Fjarðarkaupa, og Guðrúnu Jóhannesdóttur, sem hefur rekið Kokku á Laugarvegi í aldarfjórðung ásamt fjölskyldu sinni, um verslunarrekstur og viðskiptaumhverfi hér á landi í Vikulokunum.Guðrún Jóhannesdóttir, sem hefur rekið verslunina Kokku í aldarfjórðung, hefur áhyggjur af samþjöppun á markaði og einsleitni í verslunarrekstri og vöruúrvali. Gísli Sigurbergsson, eigandi Fjarðarkaupa, vonar að kaupmaðurinn á horninu komi aftur.
„Það sem er náttúrlega mikið að breytast í verslun í dag er þessi samþjöppun á markaði sem mér finnst svolítið áhyggjuefni verð ég að segja. Auðvitað hefur fólk áhyggjur af því að það verði allt einsleitt. Það er alveg sama hversu búðin er stór. Mér finnst lenska hérna að búðirnar eru gríðarlega stórar en það er einhvern veginn sama dót í þeim öllum,“ segir Guðrún.
„Það vantar svolítið þessa persónulegu nálgun sem fólk á eftir að sakna úr Fjarðarkaupum ef að það breytist eitthvað þar.“ Minni fjölskyldufyrirtæki verði að nálgast verkefnin með öðrum hætti, „að vera með aðeins aðrar áherslur en allir hinir,“ segir Guðrún. „Það er gríðarlega mikil samkeppni, ekki bara innanlands heldur líka erlendis frá,“ segir hún. Erlendar netverslanir breyti miklu.
Gísli segir gríðarlega margt hafa breyst í verslunarrekstri á meðan hann hefur rekið Fjarðarkaup. „Auðvitað er erfitt að keppa við þessa stóru aðila,“ segir hann. „Þá þarftu að keppa í öðru og það er það sem við höfum gert í gegnum tíðina, að sinna okkar viðskiptavinum,“ bætir hann við og nefnir einstaklingsbundna þjónustu sérstaklega.
Kaupmaðurinn á horninu komi aftur
Gísli segist aðspurður vona að verslanir framtíðarinnar verði ekki stórir lagerar sem viðskiptavinir panti vörur úr í gegnum netið, jafnvel með aðstoð gervigreindar. „Ég vona ekki. Ég vona bara að þróunin verði aftur til baka, að við förum aftur í það að kaupmaðurinn á horninu komi aftur. Að hann eigi líf seinna.“
Guðrún tekur undir með Gísla. „Í þessu samkeppnisumhverfi er það eina sem getur fleytt litlu fyrirtæki eins og mínu áfram, það er einmitt þjónustulundin,“ segir hún. „Að fá einhvern sem leiðir þig í gegnum þetta og útskýrir á mannamáli.“
„Ég held að þetta fari til baka, ég meina fólk er farið að hlusta aftur á vínylplötur,“ bætir hún við.
Nánar var rætt við Guðrúnu og Gísla um verslunarrekstur og viðskiptaumhverfið hér á landi í Vikulokunum á samtengdum rásum 1 og 2 á laugardaginn.
