Minna mansal með harðari refsingum við vændiskaupum

Afbrotafræðingur fagnar frumvarpi dómsmálaráðherra um vændiskaup þar sem kveðið er á um harðari refsingar. Hún segir það löngu tímabært.

„Vændiskaupendur á Íslandi hafa verið einu sakborningarnir sem hafa hlotið nafnleynd. Af því það er venjulega þannig að það eru birt nöfn í öllum dómum en af því þeir hafa komist upp með að borga bara sekt og fara þá ekki fyrir dóm, þá hefur þessi nafnleynd ríkt,“ segir Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur og dósent við Háskóla Íslands.

Í frumvarpi dómsmálaráðherra er lagt til að fangelsisdómur verði lágmarksrefsing við fangelsiskaupum.

Margrét segir rannsóknir sýna að harðari refsingar dragi úr eftirspurn eftir vændi.

„Og það sem meira er og það sem skiptir kannski meira máli er að þar sem eftirspurnin er minni, þar er minna mansal. Mansal er náttúrulega bara þvingað vændi,“ segir Margrét.

„Við viljum auðvitað ekki hafa mansal. Við viljum nota allar leiðir sem eru færar til að draga úr mansali. Og það sem er líka er að mansal er svo stór þáttur í skipulagðri brotastarfsemi. Það er næststærsti hagnaður skipulagðra brotahópa á eftir fíkniefnasölu.“

Margrét segir mikilvægt að samhliða samþykkt frumvarpsins verði stuðningur við seljendur vændis aukinn.

Meðal þess sem hagsmunasamtök kynlífsverkafólks hafa gagnrýnt er að þó seljendur vændis séu skilgreindir sem þolendur í lögum sé ekki komið fram við þá sem slíka. Margrét segir seljendur veigra sér við að leita til lögreglu verði þeir fyrir ofbeldi því þeir hafi þá sjálfir verið ákærðir fyrir að auglýsa vændi, sem er ólöglegt þó sala þess sé lögleg.

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum.Afbrotafræðingur segir harðari refsingar við vændiskaupum draga úr mansali og grafa undan skipulagðri brotastarfsemi. Hún fagnar frumvarpi dómsmálaráðherra.