Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, er hættur í hagræðingarhópi Reykjavíkurborg. Hann segist ekki fá neinu framgengt
Hann greindi frá ákvörðun þessu í færslu á Facebook síðdegis.
„Ég hef bara ekki verið alveg sáttur við hvernig þetta hefur verið,“ segir Pétur í samtali við fréttastofu.
Hann segist hafa verið ósammála því sem hópurinn hafi gert, bæði hugmyndafræðinni og útfærslunni.
„Auðvitað þarf að fara vel með peninga og það þarf að hagræða og það hefur verið hagrætt áður. En mér finnst asinn og hraðinn í þessu hafa gert það að verkum að það hafi verið gerð mistök og stundum gleymst að við erum að reka samfélag en ekki venjulegt fyrirtæki.“
Oddvitar í borgarstjórn sitja í hópnum. Oft séu þeir ekki sammála á fundum hópnum en meirihlutinn ráði.
„Það hefur alveg verið skýrt hjá mér að ég hef viljað fara aðrar leiðir. Þannig að það er ekkert eitthvað eitt sem gerir útslagið. Þetta er bara núna þessi tími, þessir fyrstu fimm mánuðir á nýju kjörtímabili þar sem hefur verið farið í dálítið aggresívar niðurskurðaraðgerðir sem ég held að hefði átt að gera á annan hátt og betur.“
Það kemur enginn inn hópinn í staðinn fyrir Pétur. Hann segir Vinstrið og Sósíalista ekki hafa verið með fulltrúa í hópnum. „Nú er Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, eini úr minnihlutanum, annars er þetta bara meirihlutinn.“
Hann segist hafa farið inn í hópinn af heilum hug og tekur fram að ekki hafi verið von stemning meðal oddvitana.
„En það er greinilegur ágreiningur um hvernig á að reka borgina og ég held að það sé bara best að leiðir skiljist.“
Aðspurður segir Pétur enga hagræðingu í ákvörðuninni, oddvitarnir fái ekki laun fyrir að sitja í hópnum.
„Þetta er bara hluti af vinnunni þannig að það er engin hagræðing í því. Þetta var ekki hagræðingaraðgerð hjá mér. Þetta var meira bara að ég sé alveg að ég fæ engu framgengt í þessum hópi.“
